Skiptar skoðanir á nýjum kjarasamningum leikskólakennara Bjarki Ármannsson skrifar 20. júní 2014 09:00 Haraldur Freyr Gíslason er formaður Félags leikskólakennara. Vísir/Valli
Launamunur á leikskólakennurum og leiðbeinendum sem ekki hafa leikskólafræði að menntun mun aukast með nýjum kjarasamningum Félags leikskólakennara, sem kynntir eru félagsmönnum um þessar mundir. „Ég er menntaður grunnskólakennari en ég starfa sem deildarstjóri á leikskóla,“ segir Jónína Einarsdóttir, meðlimur í Félagi leikskólakennara. Samkvæmt hennar útreikningum munu laun hennar koma til með að hækka um 2,8 prósent með nýjum samningum. „Ef ég væri hins vegar menntaður leikskólakennari, og væri að starfa sem deildarstjóri væri ég að fá á bilinu 6,5 prósent hækkun upp í 12,5 prósent hækkun.“ Munurinn sé einnig mikill meðal menntaðra leikskólakennara og starfsmanna með aðra fagmenntun. Hún segir það mjög einkennilegt að munurinn á launahækkun hennar og þeirra sem hafa leikskólafræði að menntun sé svo mikill, í ljósi þess að hún sinni sömu störfum og þeir og hafi sama samningaaðila. „Ég er búin að lesa samninginn aftur og aftur í dag því ég var svo hissa á þessu,“ segir hún. „Mér finnst þetta bara út í hött. Ég er búin að tala við nokkra sem eru í sömu stöðu og ég og við sjáum öll það sama út úr þessu.“ Jónína segir að ástæðan fyrir þessum mun á hækkuninni sé klárlega lítil aðsókn í leikskólafræði undanfarin ár. „Það er náttúrulega þannig að leikskólakennarar eru deyjandi stétt, það er málið. Þetta er núna fimm ára háskólanám með lélegum launum. Þannig að auðvitað skil ég að það þurfi að hækka launin en það er ekki hægt að láta okkur sem erum að halda uppi faglegu starfi innan leikskólanna sitja í súpunni. Ég get ekki ímyndað mér annað, ef þeir ætla að standa föst á þessu, en að fagmenntuðu fólki innan leikskóla eigi eftir að fækka. Og nógu fáir eru þeir nú þegar.“Verður að vera meiri launamunur Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir þetta gert með það í huga að þeir sem ætli að velja sér kennaranám, sjái frekar hag sinn í því að velja sér leikskólafræðin. „Eins og samningar voru gat annað háskólamenntað fólk farið í störf leikskólakennara og fengið nánast sömu laun, það var ekki nema 2,8 prósent munur á þessum hópum,“ segir Haraldur. „Það er að leiða til þess, ásamt öðrum þáttum, að nemi á krossgötum sem er að velja sér nám á menntavísindasviði velur frekar hin skólastigin. Því hann átti þá alltaf kost á því að fara að vinna í leikskóla á nánast sömu launum.“ Haraldur segir að vegna þessa hafi samninganefndin talið að það væru rök fyrir því að það þyrfti að vera meiri launamunur á milli þessara hópa, til að halda kennslufræði leikskólans á lofti. Hann skilji þó reiði fólks vegna þessa atriðis og segir að verið sé að leita lausna til þess að koma til móts við þennan hóp. „Við erum búin að semja um að 0,1 prósent af heildarlaunum sem vinnuveitandi greiðir, verði greitt í sérstakan sjóð. Við ætlum hugsanlega að bæta í þennan sjóð, þannig að það verði um það bil 0,35 prósent sem fari í hann. Þetta á að vera námsstyrkjasjóður fyrir þá leiðbeinendur sem starfa núna í leikskólunum til þess að sækja sér leikskólakennaramenntun.“ Hann bendir á að til sé námsleið í Háskóla Íslands og Háskóla Akureyrar þar sem hægt er að taka masters-nám í leikskólafræði á tveimur árum. „Þá útskrifast þau með leyfisbréf til kennslu á leikskólakennarastigi og munu þá bara starfa sem leikskólakennarar. Við eigum eftir að útfæra þetta en þetta er hugmyndin. Þetta viljum við gera fyrir þetta fólk og til að leggja okkar á vogarskálarnar til að fjölga leikskólakennurum. Það er það allra brýnasta.“
Tengdar fréttir Leikskólakennarar greiða atkvæði um vinnustöðvun „Ef við bíðum lengur erum við í raun að samþykkja baráttulaust að verða samningslaus fram á haust. Ástæðan er augljós. Það verða engin tækifæri til að beita þvingandi aðgerðum þegar að allir eru í sumarfríi.“ 24. maí 2014 11:04 Ekkert verður af verkfalli leikskólakennara Samningar tókust milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og leikskólakennara fyrr í kvöld. 16. júní 2014 20:18 Engin lausn í sjónmáli í kjaradeilum Samningafundum flugvirkja og leikskólakennara var slitið á fimmta tímanum í dag, án árangurs. Vinnustöðvanir eru boðaðar 19. júní næstkomandi. 10. júní 2014 18:22 Kjaradeilu leikskólakennara vísað til ríkissáttasemjara Leikskólakennarar fara fram á sömu launahækkanir og grunnskólakennarar fengu á dögunum. 23. maí 2014 16:43 Leikskólakennarar samþykkja vinnustöðvun 99 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu stöðvunina. 2. júní 2014 18:01 Engin rök fyrir lægri launum leikskólakennara Niðurstaðna úr atkvæðagreiðslu um fyrirhugaða vinnustöðvun leikskólakennara er að vænta síðar í dag. 2. júní 2014 15:42 Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Fleiri fréttir Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Sjá meira
Leikskólakennarar greiða atkvæði um vinnustöðvun „Ef við bíðum lengur erum við í raun að samþykkja baráttulaust að verða samningslaus fram á haust. Ástæðan er augljós. Það verða engin tækifæri til að beita þvingandi aðgerðum þegar að allir eru í sumarfríi.“ 24. maí 2014 11:04
Ekkert verður af verkfalli leikskólakennara Samningar tókust milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og leikskólakennara fyrr í kvöld. 16. júní 2014 20:18
Engin lausn í sjónmáli í kjaradeilum Samningafundum flugvirkja og leikskólakennara var slitið á fimmta tímanum í dag, án árangurs. Vinnustöðvanir eru boðaðar 19. júní næstkomandi. 10. júní 2014 18:22
Kjaradeilu leikskólakennara vísað til ríkissáttasemjara Leikskólakennarar fara fram á sömu launahækkanir og grunnskólakennarar fengu á dögunum. 23. maí 2014 16:43
Leikskólakennarar samþykkja vinnustöðvun 99 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu stöðvunina. 2. júní 2014 18:01
Engin rök fyrir lægri launum leikskólakennara Niðurstaðna úr atkvæðagreiðslu um fyrirhugaða vinnustöðvun leikskólakennara er að vænta síðar í dag. 2. júní 2014 15:42