Leikskólakennarar greiða atkvæði um vinnustöðvun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 24. maí 2014 11:04 „Ef við bíðum lengur erum við í raun að samþykkja baráttulaust að verða samningslaus fram á haust." vísir/valli
Boðað hefur verið til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun leikskólakennara hinn 19. júní næstkomandi, en Samband íslenskra sveitarfélaga vísaði í gær kjaradeilu sinni við Félag leikskólakennara til ríkissáttasemjara. Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara segir að slagurinn verði ekki tekinn baráttulaust. „Ef við bíðum lengur erum við í raun að samþykkja baráttulaust að verða samningslaus fram á haust. Ástæðan er augljós. Það verða engin tækifæri til að beita þvingandi aðgerðum þegar að allir eru í sumarfríi,“ segir Haraldur í bréfi sem sent var á leikskólakennara. Kröfur leikskólakennara eru þær að leikskólakennarar fái sömu hækkanir og grunnskólakennarar sem og tímasetta áætlun til að leiðrétta og jafna starfskjör. „Það vantar 1300 leikskólakennara. Staðan er alvarleg. Það eina skynsama í stöðunni er að semja strax,“ segir Haraldur í samtali við Vísi. Hann segir vandann alvarlegan og eins og staðan er núna uppfylli sveitarfélögin ekki lög númer 87/2008 um menntun og ráðningu kennara. „Það er gríðarlega mikilvægt að þátttaka í atkvæðagreiðslunni verði mikil og að félagsmenn verði sem flestir sammála samninganefndinni um að boða til þessa verkfalls. Það hefur ekki verið góð þátttaka í kosningum um hin ýmsu mál undanfarið. Það er mín von að nú stígi félagsmenn upp og sýni samstöðu.“ Náist samningar ekki verður boðað til sólarhringsverkfalls 19. júní. Haraldur segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið, en það sé þó ljóst að leikskólakennarar sætti sig ekki við stöðuna eins og hún er núna. Fyrsta skref sé að fara á fund með ríkissáttasemjara, sem hefur þó ekki boðað til fundar.
Tengdar fréttir Kjaradeilu leikskólakennara vísað til ríkissáttasemjara Leikskólakennarar fara fram á sömu launahækkanir og grunnskólakennarar fengu á dögunum. 23. maí 2014 16:43 Munu ekki sætta sig við neitt minna Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir þá vilja sömu hækkun og grunnskólakennarar fengu. 21. maí 2014 17:24 Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Kjaradeilu leikskólakennara vísað til ríkissáttasemjara Leikskólakennarar fara fram á sömu launahækkanir og grunnskólakennarar fengu á dögunum. 23. maí 2014 16:43
Munu ekki sætta sig við neitt minna Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir þá vilja sömu hækkun og grunnskólakennarar fengu. 21. maí 2014 17:24