Árás í Selbrekku ætlað að valda sem mestum skaða Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2014 18:24 Vísir/GVA
Maður sem grunaður er um líkamsárás í Selbrekku síðastliðinn föstudag, verður í gæsluvarðhaldi og einangrun til 6. júní næstkomandi. Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald. Samkvæmt greinargerð Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins eru málsatvik þau að laust fyrir klukkan níu á föstudagsmorgun barst lögreglunni tilkynning um mann sem lá í blóði sínu við Selbrekku. Maðurinn var með mikla áverka og aðallega í andliti, marga skurði, áverka á hnakka, brotnar tennur, rifna vör, bólgin augu og mögulega með blóð í öndunarvegi. Læknir á slysadeild mat áverkana svo að árásin hafi verið kröftug og eins og henni hafi verið ætlað að valda sem mestum skaða. Sagt var frá málinu á Vísi á föstudaginn. Tvö vitni sáu tvo menn sem þóttu grunsamlegir í háttum. Þeir hafi stanlaust verið að svipast um og líta niður götuna. Vitnin sáu ekki árásina sjálfa en komu að manni sem lá í blóði sínu og hringt á neyðarlínuna. Lögreglan lýsti eftir frekari vitnum og fékk ábendingu frá íbúa sem hafði séð tvo menn sitja í bíl. Einhverju seinna voru mennirnir enn í bílnum svo íbúinn tók níður skráningarnúmer bílsins. Eigandi bílsins er maðurinn sem situr nú í gæsluvarðhaldi. Þegar hann var handtekinn fundust föt heima hjá honum sem voru ötuð blóði. Hann vildi þó ekkert kannast við að hafa verið í Selbrekku á föstudagsmorguninn. Þegar sími hans var skoðaður kom í ljós að hann hafði verið í sambandi við mann sem hafði verið eftirlýstur í heimalandi sínu vegna manndrápsmáls. Hann sagðist ekki muna eftir þessum samskiptum, en samkvæmt lögreglustjóra hljóðuðu skilaboðin svona: Við erum að koma. Batteríið á myndavélinni var tómt, erum að hlaða, komum síðan. Lögreglan leitar nú að hinum manninum Dóminn má sjá á vefsíðu Hæstaréttar.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira