Aron: Ég vonaði að Ísland kæmist á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júní 2014 10:00 Aron og Jurgen Klinsmann á æfingu bandaríska landsliðsins. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson, framherji AZ Alkmaar og bandaríska landsliðsins, var í ítarlegu viðtali í sérstöku HM-blaði tímaritsins Howler Magazine. Meðal þess sem ber á góma í viðtalinu er sú ákvörðun Arons að leika fyrir landslið Bandaríkjanna og viðbrögðin við þeirri ákvörðun hér á landi. Aron er fáorður um aðdraganda og eftirmála ákvörðunarinnar, en fram kemur að hann sé jafnan var um sig í samskiptum við fjölmiðla og gefi þeim ekki tækifæri á að mistúlka ummæli sín. "Ég hef lært að þú getur ekki grínast of mikið í fjölmiðlum," segir Aron í viðtalinu við Howler, en hann rifjar upp atvik sem átti sér stað eftir leik með AGF gegn AaB frá Álaborg. Aron skoraði glæsilegt mark í leiknum og í viðtali eftir leikinn sagði hann að það hefði ekki verið heppnisstimpill yfir því og að svona mörk væru komin af æfingasvæðinu. Fyrirsögninni "Aron: Ég skora svona mörk á hverjum degi. Ekkert mál", var skellt fram. "Þetta var ekki gott mál," segir Jóhann Gíslason, faðir Arons, í viðtalinu við Howler. "Það leit út eins og hann væri hrokafullur." Fram kemur að Aron hafi leitað ráða hjá Ernie Stewart, fyrrverandi landsliðsmanni Bandaríkjanna og yfirmanni knattspyrnumála hjá AZ Alkmaar, þegar kom að því að velja milli Íslands og Bandaríkjanna. "Miðað við alla hans hæfileika og alla þá kosti sem hann býr yfir, þá fannst mér hann passa vel inn í bandaríska landsliðið, þar sem hann fengi tækifæri til að spila og vera um leið hluti af þeim uppgangi sem nú er í bandarískum fótbolta" segir Stewart, sem fæddist í Hollandi og hefur, líkt og Aron, tvöfalt ríkisfang. Hann ber mikið lof á Aron. "Hann hefur sannað sig sem markaskori," segir Stewart sem lék 101 landsleik og skoraði sjö fyrir Bandaríkin á árunum 1990-2004. Hann sagði Aron minna sig á hollenska framherjann Ruud van Nistelrooy. "Aron er baneitraður inni í vítateignum og hann hreyfir sig mjög vel án boltans." En þrátt fyrir að hafa kosið að spila fyrir Bandaríkin segist Aron enn bera taugar til íslenska landsliðsins og hann vonaðist til að Ísland kæmist á HM. "Ég var mjög spenntur," sagði Aron um umspilsleiki Íslands og Króatíu síðasta haust. "Ég vonaði svo innilega að Ísland myndi komast á HM. Ég vissi að ef þeir myndu komast þangað, þá myndu þeir lenda í riðli með Bandaríkjunum," sagði Aron og bætti í léttum dúr við að "það hefði verið magnað: að vinna Ísland á HM!"
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Þjálfari Arons hjá IMG: Sá strax að hann hafði hæfileika Aron Jóhannsson, framherji AZ Alkmaar og bandaríska landsliðsins, var í ítarlegu viðtali við sérstakt HM-blað tímaritsins Howler Magazine. 8. júní 2014 15:50 Aron kom ekkert við sögu í sigri Bandaríkjanna Bandaríkin báru sigurorð af Nígeríu, 2-1, í síðasta leik sínum fyrir HM í Brasilíu. Leikið var á EverBank Field í Jacksonville í Flórída. 8. júní 2014 00:23 Aron skoraði í sigri Bandaríkjanna | Myndband Aron Jóhannsson skoraði í nótt sitt annað landsliðsmark fyrir Bandaríkin er liðið vann 2-0 sigur á Aserbaídsjan í vináttulandsleik. 28. maí 2014 09:01 Klinsmann: Aron er að venjast álaginu Bandaríska landsliðið undirbýr sig nú að kappi fyrir HM í Brasilíu sem hefst á fimmtudaginn. 8. júní 2014 10:00 Aron sat á bekk Bandaríkjanna Aron Jóhannsson fékk ekki tækifæri þegar bandaríska landsliðið vann 2-1 sigur á Tyrkjum í vináttulandsleik í dag. 1. júní 2014 20:15 Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Sjá meira
Þjálfari Arons hjá IMG: Sá strax að hann hafði hæfileika Aron Jóhannsson, framherji AZ Alkmaar og bandaríska landsliðsins, var í ítarlegu viðtali við sérstakt HM-blað tímaritsins Howler Magazine. 8. júní 2014 15:50
Aron kom ekkert við sögu í sigri Bandaríkjanna Bandaríkin báru sigurorð af Nígeríu, 2-1, í síðasta leik sínum fyrir HM í Brasilíu. Leikið var á EverBank Field í Jacksonville í Flórída. 8. júní 2014 00:23
Aron skoraði í sigri Bandaríkjanna | Myndband Aron Jóhannsson skoraði í nótt sitt annað landsliðsmark fyrir Bandaríkin er liðið vann 2-0 sigur á Aserbaídsjan í vináttulandsleik. 28. maí 2014 09:01
Klinsmann: Aron er að venjast álaginu Bandaríska landsliðið undirbýr sig nú að kappi fyrir HM í Brasilíu sem hefst á fimmtudaginn. 8. júní 2014 10:00
Aron sat á bekk Bandaríkjanna Aron Jóhannsson fékk ekki tækifæri þegar bandaríska landsliðið vann 2-1 sigur á Tyrkjum í vináttulandsleik í dag. 1. júní 2014 20:15