Dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist á unnustu sína Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. maí 2014 16:34 vísir/pjetur
Tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa veist að þáverandi unnustu sinni á heimili hennar í Breiðholti. Manninum er gefið að sök að hafa skellt höfði konunnar í gólfið þannig að hægri hluti andlits hennar lenti í gólfinu og hélt hann henni niðri. Maðurinn sparkaði í vinstra auga hennar, íklæddur skóm og tók í hár hennar og ýtti henni upp í rúm þar sem hann tók kverkataki um háls hennar. Konan hlaut miklar bólgur, roða, mar og eymsli í andliti, á höfði og líkama. Þá tognaði hún á hálshrygg, rif- og bringubeini og vinstri litlu tá. Maðurinn neitaði sök í málinu og sagði unnustu sína þáverandi hafa fengið áverka við að falla á eldhúsinnréttingu á heimili hennar. Konan leitaði á slysadeild í kjölfar atviksins, sem átti sér stað í október 2012. Farið var með hana í sneiðmyndatöku af höfði og andlitsbeinum, ljósmyndir voru teknar og hjartalínurit og var framburður hennar því talinn trúverðugur. Manninum er gert að greiða konunni, sem er tuttugu og tveggja ára gömul, 1.510.704 krónur auk vaxta í skaðabætur. Honum er jafnframt gert að greiða 678.100 krónur í sakarkostnað auk alls málskostnaðar, að upphæð 550.900 kr.
Tengdar fréttir Ákærður fyrir að hafa sparkað í augu og rifið í hár unnustu Konan, sem er tuttugu og tveggja ára gömul, hlaut mikla áverka víðs vegar um líkamann. 29. apríl 2014 11:48 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira
Ákærður fyrir að hafa sparkað í augu og rifið í hár unnustu Konan, sem er tuttugu og tveggja ára gömul, hlaut mikla áverka víðs vegar um líkamann. 29. apríl 2014 11:48