Forsætisráðherra Bretlands sendir samkynhneigðum hamingjuóskir Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 29. mars 2014 22:58 vísir/afp
Fyrstu brúðkaup samkynhneigðra í Bretlandi fóru fram í dag. Forsætisráðherra landsins sagði um sögulegan dag að væri að ræða. Var dagurinn í dag sá fyrsti sem samkynhneigð pör máttu láta gefa sig saman í Englandi og Wales eftir að ríkisstjórnin lögleiddi hjónaband fólks af sama kyni í júlí síðastliðnum. Borgarleg sambúð samkynhneigðra hefur verið heimiluð síðan 2005, og veitir slík sambúð sömu lagalegu réttindi og gifting. Baráttumenn segja hinsvegar að þau lög gefi til kynna að samkynhneigð sambönd séu óæðri þeim gagnkynhneigðu. Samþykkt laganna síðasta sumar olli titringi innan íhaldsflokksins, flokks David Cameron forsætisráðherra, en margir innan þess flokks eru á móti hjónaböndum samkynhneigðra þar sem þeir telja slík hjónabönd ganga gegn trúarskoðunum sínum. Cameron sjálfur hefur hinsvegar alltaf verið fylgjandi því að samkynhneigðir hafi sama rétt til hjónabanda og aðrir. Hann fagnaði fyrstu hjónaböndunum og sagði þau senda öflug og jákvæð skilaboð um jafnrétti á Bretlandseyjum. Þó að fjöldi þeirra landa sem leyfa hjónabönd samkynhneigðra hafi vaxið verulega síðan Holland reið á vaðið árið 2000, eru þó enn ekki nema 17 lönd sem leyfa slík hjónabönd. Hjónabönd samkynhneigðra verða leyfileg í Skotlandi frá og með október.Congratulations to the gay couples who have already been married - and my best wishes to those about to be on this historic day.— David Cameron (@David_Cameron) March 29, 2014
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira