Innlent

Vilja að saksóknari víki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá mótmælunum í haust.
Frá mótmælunum í haust. Vísir/GVA
Verjendur þeirra níu, sem ákærðir eru fyrir framgöngu sína gagnvart lögreglu í mótmælum í Gálgahrauni í október á síðasta ári, óskuðu eftir því í morgun að saksóknarinn í málinu yrði látinn víkja.

Fyrirtaka í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Verjendurnir telja saksóknarann Karl Inga Vilbergsson ekki geta sinnt hlutverki sínu sem skyldi þar sem hann gæti þurft að bera vitni í málinu.

Karl Ingi mótmælti kröfunni að því er Rúv greinir frá. Greinargerð verjendanna verður tekin fyrir þann 24. mars.

Mótmælendurnir börðust gegn náttúruspjöllum í Gálgahrauni. Á þriðja tug fólks var handtekið. Þau níu, sem ákærð eru fyrir mótmæli sín, neita öll sök.


Tengdar fréttir

Málsmeðferð í Gálgahraunsmáli í samræmi við lög

"Lögin gera nú bara beinlínis ráð fyrir því að lögreglustjórar sem fara með rannsókn mála fari jafnframt með ákæruvald í þeim,“ segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Segir trú Íslendinga á álfa ekki koma á óvart

Málefni Gálgahrauns hefur ratað á internetið og fjallað um það á síðunni The Blaze. Aðalumfjöllunarefni greinarinnar er þó raun, hinir íslensku álfar sem sagðir eru búa í hrauninu.

Náttúruvinir settir í einangrun

"Ég var í einangrun í upp undir fjórar klukkustundir og var tekinn í yfirheyrslu sem stóð yfir í um hálftíma,“ segir Gunnsteinn Ólafsson, hrauna- og náttúruvinur, sem var handtekinn tvisvar sinnum á meðan á mótmælunum í Gálgahrauni stóð í fyrradag.

Hraunavinir kæra til Hæstaréttar

Hraunavinir hafa kært til Hæstaréttar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði beiðni sóknaraðila um að leitað skyldi ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna framkvæmda í Gálgahrauni.

Lögreglan farin að bera fólk út af svæðinu við Gálgahraun

"Það er verið að bera menn útaf svæðinu, en það eru einhverjar skipanir skilst mér um að það eigi ekki að handataka fólk eins og í gær,“ segir Ragnar Unnarsson, náttúruverndarsinni sem er staddur við mótmælin í Gálgahrauni.

Hraunavinir funduðu með bæjarstjóra Garðabæjar

"Það gerðist nú ekki mikið,“ segir Reynir Ingibjartsson, einn af forsvarsmönnum Hraunavina sem fóru á fund bæjarstjóra Garðabæjar, Gunnars Einarssonar, í ráðhúsi Garðabæjar í gær.

Kröfu Hraunavina hafnað

Krafa um beiðni um álit EFTA-dómstólsins á því hvort náttúruverndarsamtökin eigi lögvarinna hagsmuna að gæta hafnað af Héraðsdómi Reykjavíkur.

Vigdís til varnar Gálgahrauni

Boðað hefur verið til styrktartónleikar í Neskirkju til stuðnings baráttu Hraunavina fyrir verndun Gálgahrauns og er Vigdís Finnbogadóttir verndari tónleikanna.

Stóru málin: Ómar og bæjarstjórinn takast á

Ómar Ragnarsson náttúruverndarsinni og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ voru leiddir saman við Gálgahraun þar sem þeir fóru yfir deiluna í Stóru málunum sem var á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld.

Á annað hundrað á útkallslista Hraunavina

"Hraunavinir ætla að halda áfram varðstöðu í Gálgahrauni,“ segir Skúli Bjarnason, lögmaður náttúrverndarsamtakanna. Hann segir að Vegagerðin hafi tilkynnt Hraunavinum á fundi að hún myndi hefja framkvæmdir í Gálgahrauni og því hafi menn ákveðið að hafa fólk á vakt í hrauninu.

Framkvæmdir komnar á fullt í Gálgahrauni

"Flestir mótmælendur sem staddir voru á vinnusvæðinu við Gálgahraun í morgun hafa verið bornir burtu af svæðinu, einhverjir fóru af sjálfsdáðum,“ segir Ragnar Unnarsson, náttúruvinur. Framkvæmdir eru komnar á fullt og jarðýtan komin af stað.

Gagnrýnir Hönnu Birnu - Segir hana eiga að vita betur

"Það er mjög fróðlegt að heyra ráðherra dómsmála segja, að það sé engin réttaróvissa í málum sem eru rekin fyrir dómstólum,“ segir Skúli Bjarnason, lögmaður Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands, Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina.

Minnir meira á lögregluríki en nútíma réttarríki

Ákærðu þekkja saksóknarann í Gálgahraunsmálinu sem manninn sem sást stýra lögregluaðgerðum í hrauninu, daginn sem fólkið var handtekið, flutt af vettvangi og læst í fangaklefa.

Ómar sló á létta strengi

Fjögur náttúruverndar-samtök stóðu í dag fyrir tónleikum til stuðnings þeim hraunavinum sem handteknir voru í vikunni. Vigdís Finnbogadóttir var sérstakur verndari viðburðarins.

Krefja Hönnu Birnu um gögn vegna eyðileggingar í Gálgahrauni

Hraunavinir og önnur náttúruverndarsamtök krefjast þess að fá afhent öll gögn er vara samskipti ráðuneytsins við Vegagerðina, lögreglu og verktaka vegna hinnar umfangsmiklu lögregluaðgerðar sem fram fór við Gálgahraun




Fleiri fréttir

Sjá meira


×