Innlent

Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja

Birgir Olgeirsson skrifar
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. Fjórar vikur sem aðilar gáfu sér til að ná samningi við Icelandair eru liðnar án niðurstöðu.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. Fjórar vikur sem aðilar gáfu sér til að ná samningi við Icelandair eru liðnar án niðurstöðu. Vísir/Anton Brink

Fjögurra vikna frestur sem Icelandair og flugvirkjar gáfu sér til að ná nýjum kjarasamningi rann út á miðvikudag án þess að samningar næðust. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni en búist er við óformlegum samtölum í næstu viku.

Samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands funduðu síðast fimmtudaginn 15. október. Nú er verið að meta mögulegar leiðir til að ná samkomulagi.

Ríkissáttasemjari er með drög að innanhússtillögu en ekki hefur verið talið tímabært að leggja hana fram. Ekki er farið að huga að atkvæðagreiðslu meðal flugvirkja um frekari verkfallsaðgerðir.

Flugmenn funda aftur næsta miðvikudag

Enn er einnig ósamið í kjaradeilu Icelandair og flugmanna. Aðilar funduðu á miðvikudag, 21. október, en viðræðurnar hafa ekki skilað árangri.

Næsti fundur í þeirri deilu hefur verið boðaður miðvikudaginn 28. október.

Verkfallinu aflýst eftir að ríkisstjórnin boðaði lög

Fjögurra vikna viðræðutímabilið í deilu flugvirkja hófst eftir að verkfalli þeirra var aflýst 23. september. Verkfallið hafði þá staðið í um ellefu klukkustundir, frá miðnætti fram undir hádegi.

Ríkisstjórnin hafði þann morgun boðað lagasetningu til að stöðva aðgerðirnar. Áður en til þess kom náðu Icelandair og Flugvirkjafélagið samkomulagi um að aflýsa verkfallinu og nýta næstu fjórar vikur til markvissra viðræðna undir stjórn ríkissáttasemjara.

Í sameiginlegri yfirlýsingu aðila var markmiðið að ljúka gerð nýs kjarasamnings á tímabilinu. Því lauk á miðvikudag, 21. október, án niðurstöðu.

Tæpur hálfur milljarður í tekjutap og aukakostnað

Í uppgjöri Icelandair fyrir þriðja ársfjórðung, sem birt var í gær, kemur fram að verkfallið hafi haft neikvæð áhrif á afkomuna upp á fjórar milljónir Bandaríkjadala, að 486 milljónir króna.

Þar af voru tapaðar tekjur metnar á 2,8 milljónir dala, 340 milljónir króna. 

Aukinn kostnaður vegna aflýstra flugferða nam 1,2 milljónum dala, 145,9 milljónum króna.

Krónutölurnar eru reiknaðar á miðgengi Seðlabankans 22. október.

Hagnaður á sumarfjórðungi en spá tapi fyrir árið

Icelandair hagnaðist um 96,7 milljónir dala, 11,8 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi þegar tekið hafði verið tillit til alls kostnaðar, þar á meðal vaxta og skatta.

Tekjur námu 655 milljónum dala, 79,6 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi.

Horfur fyrir lok árs eru hins vegar erfiðar og hátt eldsneytisverð íþyngir rekstrinum. Félagið býst við að tapa á bilinu 20 til 30 milljónum dala, 2,4 til 3,6 milljörðum króna, á árinu í heild, áður en tekið er tillit til vaxta og skatta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×