Svava í Sautján og Björn sýknuð Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2014 18:27 Svava Þorgerður Johansen og Björn Sveinbjörnsson. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Svövu Þorgerði Johansen, oftast kennd við Sautján, og Birni Sveinbjörnssyni í skaðabótamáli nágranna þeirra, Guðmundi Magnússyni og Ragnhildi Ásu Gunnarsdóttur, gegn þeim. Guðmundur og Ragnhildur sögðu hús sitt hafa orðið fyrir skemmdum vegna framkvæmda við hús Svövu og Björns og jarðsigs vegna jarðvegsvinnu. Skemmdirnar voru metnar á eina og hálfa milljón króna. Í niðurstöðu dómsins segir að fyrir liggi og sé óumdeilt að þau Svava og Björn hafi fengið öll tilskilin leyfi fyrir framkvæmdunum við fasteignina, þar á meðal umræddar jarðvegsframkvæmdir. Þá öfluðu þau samþykkis nágranna fyrir framkvæmdunum, þeim Guðmundi og Ragnhildi á meðal. „Þá liggur ekki annað fyrir en að staðið hafi verið að framkvæmdum á lóð stefndu, þ. á. m. við þjöppun jarðvegs, á faglegan hátt og stefndu sýnt þá aðgát við framkvæmdina, sem af þeim varð krafist. Hafa stefnendur ekki sýnt fram á eða gert sennilegt að tjón þeirra vegna titrings frá framkvæmdunum verði rakið til gáleysis stefndu. Verða stefndu því sýknuð af kröfum stefnenda í máli þessu.“ Málskostnaður milli aðila féll niður.Í fyrri frétt Vísis af málinu segir að Svava og Björn hafi keypt hús að Kvistalandi 1 árið 2008 og látið breyta húsinu og byggja við það auk þess sem farið var í jarðvegsvinnu og tjörn steypt upp nærri bílskúr þeirra Guðmundar og Ragnhildar. Guðmundur og Ragnhildur héldu því fram að framkvæmdirnar hafi valdið skemmdum á heimili þeirra. Meðal annars sögðu þau að sprungur höfðu myndast á veggjum hússins, rennihurð skekkst svo að ekki væri hægt að loka henni, sprungur myndast í flísum og þær losnað og að myndarammar hafi dottið af veggjum. Húsin tvö eru á lóð sem er í sameign fjögurra húsa á svæðinu og aðrir íbúar höfðu samþykkt teikningar Svövu og Björns og þar með talin Guðmundur og Ragnhildur. Þau kvörtuðu nokkrum sinnum vegna titrings við verktaka og Svövu og Björn. Þó drógu þau aldrei samþykki sitt til baka, né lögðu fram formlega kvörtun. Þau sýndu þó Svövu og Birni skemmdirnar sem ræddu við tryggingafélag sitt. Þrátt fyrir að þau væru fulltryggð taldi tryggingafélagið sig ekki vera skylt til að greiða fyrir skemmdirnar. Matsmenn sem gerðu skýrslu um málið sögðu skaðann nema um einni og hálfri milljón króna. Þó væri ljóst að skaðinn væri ekki allur vegna jarðvegsvinnu við Kvistaland 1, heldur var einnig vegna náttúrulegs jarðsigs í Fossvoginum. Þó sögðu þeir að meira jarðsig hefði átt sér stað þeim megin á lóð Guðmundar og Ragnhildar sem snýr að Kvistalandi 1.
Tengdar fréttir Vilja bætur frá Svövu í 17 vegna skemmda á húsi Nágrannar Svövu í Sautján segja hús sitt hafa orðið fyrir skemmdum vegna framkvæmda við hús Svövu og jarðsigs vegna jarðvegsvinnu. 26. nóvember 2014 14:54 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira
Vilja bætur frá Svövu í 17 vegna skemmda á húsi Nágrannar Svövu í Sautján segja hús sitt hafa orðið fyrir skemmdum vegna framkvæmda við hús Svövu og jarðsigs vegna jarðvegsvinnu. 26. nóvember 2014 14:54