Vilja bætur frá Svövu í 17 vegna skemmda á húsi Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2014 14:54 Svava Þorgerður Johansen og Björn Sveinbjörnsson. Vísir/GVA
Nágrannar Svövu í Sautján segja hús sitt hafa orðið fyrir skemmdum vegna framkvæmda við hús Svövu og jarðsigs vegna jarðvegsvinnu. Skemmdirnar eru metnar á eina og hálfa milljón króna. Aðalmeðferð í skaðabótamáli þeirra Guðmundar Magnússonar og Ragnhildar Ásu Gunnarsdóttur gegn þeim Birni Sveinbjörnssyni og Svövu Þorgerði Johansen fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Svava og Björn keyptu hús að Kvistalandi 1 árið 2008 og létu breyta húsinu og byggja við það auk þess sem farið var í jarðvegsvinnu og tjörn steypt upp nærri bílskúr þeirra Guðmundar og Ragnhildar. Þau halda því fram að framkvæmdirnar hafi valdið skemmdum á heimili þeirra. Meðal annars segja þau að sprungur hafi myndast á veggjum hússins, rennihurð hafi skekkst svo að ekki sé hægt að loka henni, sprungur hafi myndast í flísum og þær losnað og að myndarammar hafi dottið af veggjum.Ragnhildur Ása Gunnarsdóttir ásamt Sigurði G. Guðjónssyni.Vísir/GVAHúsin tvö eru á lóð sem er í sameign fjögurra húsa á svæðinu og aðrir íbúar höfðu samþykkt teikningar Svövu og Björns og þar með talin Guðmundur og Ragnhildur. Þau kvörtuðu nokkrum sinnum vegna titrings við verktaka og Svövu og Björn. Þó drógu þau aldrei samþykki sitt til baka, né lögðu fram formlega kvörtun. Þau sýndu þó Svövu og Birni skemmdirnar sem ræddu við tryggingafélag sitt. Þrátt fyrir að þau væru fulltryggð taldi tryggingafélagið sig ekki vera skylt til að greiða fyrir skemmdirnar. Matsmenn sem gerðu skýrslu um málið sögðu skaðann nema um einni og hálfri milljón króna. Þó væri ljóst að skaðinn væri ekki allur vegna jarðvegsvinnu við Kvistaland 1, heldur var einnig vegna náttúrulegs jarðsigs í Fossvoginum. Þó sögðu þeir að meira jarðsig hefði átt sér stað þeim megin á lóð Guðmundar og Ragnhildar sem snýr að Kvistalandi 1.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira