Töluvert um tjón vegna ófærðarinnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. desember 2014 12:00 ófærð Það hefur verið nóg að gera við snjómokstur í Reykjavík og víðar undanfarna daga.fréttablaðið/GVA vísir/gva
Töluvert hefur verið um tjón í umferðinni í þeirri slæmu færð sem hefur verið á landinu undanfarið. Talsmenn þriggja stærstu tryggingafélaganna segja þó að alvarlegustu slysin verði þegar færð er góð. Samkvæmt upplýsingum frá Birni Friðriki Brynjólfssyni, upplýsingafulltrúa VÍS, hefur tilkynningum um tjón í ábyrgðartryggingu ökutækja fjölgað um 8 prósent í desember miðað við sama tíma í desember í fyrra. Ragnheiður Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri samskipta hjá Tryggingamiðstöðinni, segir að töluvert hafi verið um tjón í desember. Hún sé hins vegar ekki viss um að það sé aukning á milli ára, því desember í fyrra hafi vissulega verið slæmur líka. „Það er kannski svolítið merkilegt að þegar færðin og veðrið er mjög slæmt, þá er eins og fólk hægi á sér og fari varlega. Þó málin séu mörg eru þau kannski minni en þegar fólk er á fullri ferð og færðin er góð,“ segir Ragnheiður. Alvarlegustu slysin verði þegar hraðinn er mikill en þegar færðin er þannig að það er mikil hálka, það kyngir niður snjó og vindur er mikill, þá geti fólk einfaldlega ekki keyrt hratt. Sumarliði Guðbjörnsson, sérfræðingur hjá Sjóvá, segir að þessa dagana sé töluvert mikið um tjón. „Það eru bæði árekstrar og menn eru að velta bílunum sínum og lenda út af veginum í vondu veðri,“ segir hann. Hann segir það reynslu sína eftir 23 ára starf að alvarlegustu slysin verði þó ekki í ófærð heldur þegar göturnar séu auðar. Alvarlegustu slysin geti því orðið á vorin eða á sumrin og oft á nóttunni eða um helgar. „Einfaldlega vegna þess að þá er hraðinn meiri,“ segir hann. Sumarliði segir að í færðinni eins og hún er núna þurfi fólk að vera á góðum dekkjum. Heilsársdekk nái ekki góðu gripi þegar ís hefur myndast og því dugi ekkert minna en naglar. „Fólk sem hefur ákveðið að vera á heilsársdekkjum og er á vanbúnum ökutækjum þarf þá að sýna þann kjark að taka þá ákvörðun að bíða heima hjá sér og fara ekki út í óvissuna. Í stað þess að eiga það á hættu að lenda í umferðaróhappi eða lenda í þeirri stöðu að sitja fastur og teppa þá kannski hundruð manna frá því að komast á réttum tíma í vinnu,“ segir Sumarliði.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira