Kjarasamningar ráða miklu að mati AGS Heimir Már Pétursson skrifar 19. desember 2014 20:38
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins nái saman um launahækkanir sem fari ekki framúr hagvaxtarþróuninni. Eftirmál fjármálaáfallsins séu enn nokkur og áhætta fyrir hendi vegna kjarasamninga, losun gjadeyrishafta og minni eftirspurnar í helstu viðskiptalöndum. Talsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kynntu síðustu eftirfylgniskýrslu sína í tengslum við efnahagsáætlun Íslands og sjóðsins á fréttamannafundi á Kjarvalsstöðum í dag. Sjóðurinn hvetur til varfærni við losun gjaldeyrishafta í ljósi ástands heimsbúskaparins og stefnufestu í styrkingu innviða efnahagslífsins. Annars séu horfur í íslenskum efnahagsmálum jákvæðar, eftirspurn sé kröftug og þótt dregið hafi úr hagvexti muni skuldaleiðrétting ríkisstjórnarinnar styrkja hana ásamt lægra innflutningsverði. En ein af ógnunum sem steðja að efnhagslífinu sé einmitt verðhjöðnun í helstu viðskiptalöndum. Hagstofan greindi frá því í dag að verðbólga í þessum mánuði sé komin undir eitt prósent eða 0,8 prósent. Og þótt Íslendingar sem þekkja vel til óðaverðbólgu á árum áður kunni að fagna hjöðnun verðlags er það ekki endilega góð þróun. Það er að segja ef verðbólga fer undir núll prósent sem myndi þýða stöðnun í efnahagslífinu. Seðlabankinn og peningastefnunefnd standa á erfiðum tímamótum og horfast í augu við fjölda misvísindi merkjasendinga. Ég tel að verðhjöðnunaráhrif frá útlöndum sé ein af þeim, hin innflutta verðhjöðnun. En á sama tíma eru merki um að bilið þarna á milli sé að minnka og atvinnuleysi hefur kannski náð eðlilegri atvinnuþátttöku,“ segir Peter Dohlman formaður sendinefndar AGS á Íslandi. Skýrsla AGS byggir á rannsóknum og samtölum við stjórnvöld, banka, fræðimenn, samtök launafólks og atinnurekenda og fleiri. Sjóðurinn telur Seðlabankann hafa nauðsynleg verkfæri til að bregðast við of mikilli hjöðnun verðlags. AGS segir ýmsa áhættu enn ríkja í efnahagsmálum landsins, meðal annars í komandi kjarasamningum. Spenna ríki á launamarkaði sem aðilar vinnumarkaðarins nái vonandi að semja um á skynsamlegum nótum. „Og þetta er alvarlegt mál. Ég tel að allar launahækkanir umfram aukna framleiðni gætu leitt til vandamála og ógnað samkeppnishæfni Íslands,“ segir Dohlman.En er lélegur kaupmáttur almennings ekki hluti vandamálsins?„Frá upphafi kreppunnar hefur kaupgeta almennings fallið og efnahagslífið hefur enn ekki náð sömu hæðum og fyrir kreppu. Þannig að það er skiljanlegt að almenningur telji launin ekki vera viðunandi. En þau hækka með vexti efnahagslífsins og stöðugleika,“ segir Peter Dohlman.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira