Heiðar að kaupa kröfur á alla föllnu bankana Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. desember 2014 11:17 Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir
Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir freistar þess nú að kaupa kröfur í slitabú Kaupþings og Landsbankans en hann hefur farið fram á gjaldþrotaskiptabeiðni yfir Glitni sem kröfuhafi bankans. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá fyrir helgi hefur Heiðar óskað eftir gjaldþrotaskiptum á Glitni og að slitameðferð bankans verði stöðvuð. Heiðar á viðurkennda kröfu á Glitni banka í gegnum félagið Ursus ehf. upp á rúmlega þrjár milljónir króna en hann keypti kröfuna fyrir rúmum tveimur mánuðum. Hann hefur hins vegar ekki viljað upplýsa af hverjum hann keypti kröfuna og hefur sagt í samtali við fréttastofu að það skipti ekki máli í þessu samhengi. Heiðar freistar þess nú að kaupa kröfur á bæði Kaupþing og gamla Landsbankann (LBI) með það fyrir augum að setja fram gjaldþrotabeiðni yfir þeim líka. Þetta kom fram í viðtali við Heiðar í Bítinu á Bylgjunni. „Ég er að reyna að gera það. Reyna að ganga frá því,“ sagði Heiðar aðspurður hvort hann væri að reyna kaupa kröfur á Kaupþing og LBI. Hann sagðist í kjölfarið mögulega ætla að óska eftir gjaldþrotaskiptum á báðum slitabúum ef þetta gengi eftir. Heiðar sagðist jafnframt í viðtalinu furða sig á þeirri ákvörðun að veita slitabúi gamla Landsbankans undanþágu til að greiða jafnvirði 400 milljarða króna í erlendum gjaldeyri til forgangskröfuhafa vegna Icesave en undanþágan var veitt á fimmtudag, sama dag og Heiðar óskaði eftir gjaldþrotaskiptum á Glitni. „Ég hefði ekki gefið Landsbankanum gamla 400 milljarða undanþágu. Ég hefði bara látið hann vera þar sem allir hinir eru líka. Það er þá undanþága sem er á kostnað almennings í landinu. Þessi viðskiptaafgangur sem er uppsafnaður frá hruni er um það bil 400 milljarðar króna. Langmest af þeim fjármunum hefur farið til kröfuhafa bankanna. Ekki til okkar, ekki til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann eða borga niður skuldir,“ sagði Heiðar. Meira þessu tengt: Mun gjaldþrotaleið einhverju breyta?Þorsteinn Einarsson hrl. útskýrir nýlegan dóm Hæstaréttar þar sem niðurstaðan var að ekki skiptir máli í hvaða mynt kröfur úr þrotabúum eru greiddar út svo lengi sem þær hafa verið umreiknaðar í krónur áður. Í umræddum dómi (Hrd. 707/2014) segir orðrétt: „Eigi þrotabú á hinn bóginn enn við skiptalok fé í erlendum gjaldmiðli standa ákvæði laga nr. 21/1991 því ekki í vegi, þótt til þess sé heldur engin skylda, að skiptastjóri inni af hendi til lánardrottna, sem fara með kröfur sem upphaflega voru í erlendri mynt, greiðslu í þeim gjaldmiðli eða öðrum til úthlutunar við skiptalok.“
Tengdar fréttir Fer fram á gjaldþrotaskipti yfir Glitni Íslenskur kröfuhafi í slitabú Glitnis hefur óskað eftir því að slitameðferð bankans verði stöðvuð og bankinn tekinn til gjaldþrotskipta. 4. desember 2014 18:57 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira
Fer fram á gjaldþrotaskipti yfir Glitni Íslenskur kröfuhafi í slitabú Glitnis hefur óskað eftir því að slitameðferð bankans verði stöðvuð og bankinn tekinn til gjaldþrotskipta. 4. desember 2014 18:57