Heimilin greiða tugi milljarða til heilbrigðismála Heimir Már Pétursson skrifar 10. október 2014 11:08 Samkvæmt þjóðhagsreikningi fyrir síðasta ári stóðu heimilin undir 19,2 prósentum framlaga til heilbrigðismála og greiddu 32 milljarða til málaflokksins.
Heimilin í landinu stóðu beint undir rúmum 19 prósentum af öllum útgjöldum til heilbrigðismála á síðasta ári eða 32 milljörðum króna. Heildarútgjöld á mann til heilbrigðismála hafa dregist saman um 10 prósent frá hruni. Í þjóðhagsreikningi Hagstofunnar fyrir síðasta ár kemur glögglega fram hvernig hrunið gerbreytti aðstæðum í afkomu hins opinbera. Þannig versnaði afkoma ríkissjóðs gífurlega á árunum 2008 og 2009. Afkoman var jákvæð um 3 prósent af landsframleiðslu árið 2007 en hrundi niður í að vera neikvæð um 12 prósent af landsframleiðslu árið 2008. Síðan þá hafa orðið töluverð umskipti á stöðu ríkissjóðs, sem skánaði strax á árinu 2009 en þó sérstaklega á árunum 2011, 2012 og 2013. Þannig var hallinn á ríkissjóði 32 milljarðar króna í fyrra samanborið við 65 milljarða árið 2012. Það má líka finna athygliverðar staðreyndir í þjóðhagsreikningi um framlög til stærstu málaflokkana sem nú eru helst í umræðunni, heilbrigðismála og menntamála og hvað ríkissjóður setur í þessa málaflokka annars vegar og hvað heimilin í landinu greiða beint til þeirra hins vegar. Heilbrigðismál eru einn stærsti útgjaldaliður hins opinbera og er líka ótrúlega stór útgjaldaliður heimilanna í landinu. Á síðasta ári voru heildarútgjöld til heilbrigðismála 165 milljarðar króna, eða 8,8 prósent af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 133 milljarðar en heimilin greiddu á því ári 32 milljarða til heilbrigðismála eða 19,2 prósent af heildarútgjöldum til þess málaflokks. Í fyrra jukust útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála um 7,9 prósent og voru 412 þúsund krónur á mann. Engu að síður voru útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála á síðasta ári 10 prósent minni en árið 2008 á verðlagi ársins 2013. Þarna vantar því um 13 milljarða upp á að útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála hafi verið þau sömu í fyrra og þau voru á hrunárinu 2008. Heimilin standa líka undir töluverðum kostnaði við fræðslumál. Heildarútgjöldin til þeirra á síðasta ári voru 146 milljarðar, þar af greiddu heimilin 14 milljarða eða 9,7 prósent. Heildarútgjöld hins opinbera til fræðslumála árið 2013 voru 406 þúsund krónur á mann og hafa minnkað um 13 prósent að raunvirði frá árinu 2008.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira