Heimilin standa undir 19 % af framlögum til heilbrigðismála Heimir Már Pétursson skrifar 10. október 2014 20:45
Þrátt fyrir mikla aukningu framlaga til heilbrigðismála á síðasta ári voru framlögin enn 10 prósent minni að raungildi en þau voru árið 2008. Þá leggja heimilin til um 19 prósent af framlögum til heilbrigðismála eða rúma 30 milljarða króna í fyrra. Í þjóðhagsreikningi Hagstofunnar fyrir síðasta ár kemur glögglega fram hvernig hrunið gerbreytti aðstæðum í afkomu hins opinbera. Þannig versnaði afkoma ríkissjóðs gífurlega á árunum 2008 og 2009, en á meðfylgjandi i mynd sést hrunið í hnotskurn.Á súlunum sést afkoma ríkis og sveitarfélaga en línan sýnir hvernig afkoma ríkissjóðs fer úr að vera jákvæð sem nemur 3,5 prósentum af landsframleiðslu árið 2007 og hrynur niður í að vera neikvæð um 12,5 prósent árið 2008. Eða úr 70 milljarða afgangi í 200 milljarða halla. Þótt staðan sé enn erfið er þó greinilegt að stjórnvöldum hefur á undanförnum fjórum árum tekist að rétta dæmið heldur við, en í fyrra var afkoman neikvæð sem nemur 1,8 prósenti af landsframleiðslu. Útgjöld til heilbrigðismála eru einn stærsti útgjaldaliður hins opinbera. En þótt útgjöld ríkissjóðs til málaflokksins hafi verið aukin um 10 milljarða í fyrra, eru þau samt enn 10 prósent lægri á verðlagi síðasta árs en þau voru hrunárið 2008. Þarna vantar því um 13 milljarða upp á að útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála hafi verið þau sömu í fyrra og þau voru á hrunárinu 2008.í þjóðhagsreikningi kemur hins vegar fram athygliverð staðreynd um framlög heimilanna til heilbrigðismála. Á síðasta ári voru heildarútgjöld til heilbrigðismála 165 milljarðar króna, eða 8,8 prósent af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 133 milljarðar en heimilin greiddu á því ári 32 milljarða til heilbrigðismála eða 19,2 prósent af heildarútgjöldum til þess málaflokks. Í fyrra jukust útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála um 7,9 prósent og voru 412 þúsund krónur á mann. Engu að síður voru útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála á síðasta ári 10 prósent minni en árið 2008 á verðlagi ársins 2013, eins og áður sagði.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Leita flugmanns eftir flugslys við Mýrdalsjökul Innlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Fleiri fréttir Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Leita flugmanns eftir flugslys við Mýrdalsjökul Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Segist hafa áhyggjur af stöðunni í Evrópu Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Sjá meira