Meint pílukast Sigmundar Davíðs vekur hneykslan og reiði Jakob Bjarnar skrifar 13. október 2014 10:39 Mikil reiði braust út á netinu, en menn töldu að Sigmundur Davíð stundaði það að kasta pílum í mynd af Jóhönnu Sigurðardóttur.
Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrverandi ritstjóri, fer ófögrum orðum um forsætisráðherra, vegna grínatriðis Loga Bergmann, sem var á dagskrá í sjónvarpsþætti hans á föstudagskvöld. Fjölmargir eru til að taka undir með Jónasi, sem í fyrstu stóð í þeirri meiningu að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra stundaði það að kasta pílum í forvera sinn í forsætisráðuneytinu. Jónas ritar harðorðan pistil á bloggsíðu sína og sparar hvergi stóru orðin; hann telur Sigmund Davíð ekki með réttu ráði og þetta athæfi megi flokkast sem bilun. „Hörmulega er komið fyrir kjósendum að hafa valið yfir sig frík.“ Á Facebooksíðu Jónasar er svo gefið í og eru margir til að taka undir með Jónasi, þetta sé fyrir neðan allar hellur og forsætisráðherra gangi ekki á öllum. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs, stígur inn á völlinn og reynir að benda fólki á að Sigmundur Davíð hafi ekkert með þetta leikna atriði að gera. En á óhægt um vik. „Það er alveg rétt, þar er við ramman reip að draga. Jónas hefur ekki verið gefinn fyrir að draga til baka rangfærslur eða stóryrði hingað til. Á því virðist engin breyting núna. Staðreyndin í málinu er auðvitað sú að þarna er um að ræða grínatriði sem aðstandendur þáttarins tóku upp og forsætisráðherra hvorki lék í né hafði séð fyrirfram,“ segir Jóhannes Þór í samtali við fréttastofu. Þegar þeir sem tjá sig á Facebooksíðu Jónasar hafa áttað sig á því að þarna sé ekki forsætisráherra sjálfan að ræða, sem er að henda pílunum, heldur leikari, beina þau tali að því að atriðið sé ósmekklegt, og forsætisráðherra hljóti með einum hætti eða öðrum að hafa lagt blessun sína yfir það. Og Jónas spyr hvort málið sé eitthvað skárra við það að þarna sé um skipulagt grín að ræða? „Nei, hann hafði ekki hugmynd um þetta. Til þess er leikurinn gerður. Að koma honum á óvart. Galið að láta sér detta í hug að það hafi verið þannig,“ segir Logi Bergmann sem veit ekki alveg hvaðan á sig stendur veðrið. „Og að þetta teljist ósmekklegt? Þetta er grín? Grín fer bara eftir sínum lögmálum. Ég óttast í þessum ritskoðunartendensum að fólk hætti að þora að reyna að vera fyndið.“ Innlegg frá Jonas Kristjansson.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira