Sveitarstjóri heldur 2,8 milljóna bílastyrk Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. nóvember 2014 07:00 Sveitarstjórinn á Hellu fær 2,8 milljónir á ári í aksturspeninga "óháð því hvort um sé að ræða raunverulegan akstur“, eins og fulltrúar minnihlutans í hreppsnefnd segja. Fréttablaðið/GVA
Meirihluti sjálfstæðismanna í hreppsnefnd Rangárþings ytra felldi á dögunum tillögu minnihluta Á-listans um að spara 2,2 milljónir á aksturspeningum sveitarstjórans. Tillaga frá Á-lista snerist um að breyta aksturskjörum sveitarstjóra frá því sem samþykkt var af meirihlutanum í upphafi nýs kjörtímabils síðastliðið vor. „Sveitarstjóri nýti bifreið skrifstofu og/eða fái greitt eftir akstursdagbók í rökstuddum undantekningartilvikum eins og tíðkast yfirleitt í svona starfi. Sú fjárhæð sem sparast verði nýtt til uppbyggingar leikvalla í sveitarfélaginu,“ sagði í tillögunni. Í greinargerð með tillögunni kom fram að sveitarstjóri fær 232 þúsund krónur í aksturspeninga á mánuði, samtals um 2,8 milljónir á ári, „óháð því hvort um sé að ræða raunverulegan akstur eða ekki.“ Lagt væri til að sveitarstjóri nýti bíl skrifstofu sveitarfélagsins við dagleg störf líkt og áður hafi verið gert og ákveðið hafi verið í nágrannasveitarfélaginu Rangárþingi eystra. Ef sveitarstjóri teldi ástæðu til að nýta eigin bíl við störf væri greitt eftir akstursdagbók. Kostnaður vegna bíls sveitarfélagsins væri áætlaður 550 þúsund krónur á ári á móti fyrrnefndum 2,8 milljónum. Hagræðingin yrði því um 2,2 milljónir á ári. „Kjör sveitarstjóra eiga ávallt að vera til skoðunar eins og aðrir kostnaðarliðir sveitarfélagsins. En þar sem sveitarstjóri er nýlega ráðinn til starfa telur D-listinn ekki rétt að breyta ráðningarkjörunum á þessari stundu,“ bókuðu fulltrúar meirihlutans og felldu tillöguna. Fulltrúar Á-lista sögðust „harma að meirihluti sveitarstjórnar sé því mótfallinn að hagræða í rekstri sveitarfélagsins á þennan hátt, sérstaklega þegar svo augljós sparnaður blasir við“.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira