Ríkið niðurgreiðir launin Sveinn Arnarsson skrifar 25. nóvember 2014 07:00 Atvinnuleysistryggingasjóður hefur greitt 1.2 milljarða af launum fiskvinnslufólks síðustu fjögur ár. Vísir/Stefán
Ríkissjóður hleypur undir bagga með fiskvinnslustöðvum úti um allt land og greiðir laun til fiskvinnslufólks þegar hráefnisskortur er annars vegar. Á síðustu fjórum árum hefur ríkissjóður sett 1.152 milljónir króna í laun fiskvinnslufólks. Þessi ráðstöfun ríkisfjár er byggð á lögum frá árinu 1995. Löggjöfin var sett til þess að tryggja launafólki kaup, svokölluð kauptrygging, og auka atvinnuöryggi í fiskvinnslu. Sjávarútvegurinn er eina atvinnugreinin sem býr við þessar aðstæður. Samkvæmt Vinnumálastofnun er þetta notað þegar lítið framboð er á fiskmörkuðum eða þegar kvótaárið er langt komið og framboð á hráefni er lítið. Hagnaður fimm kvótahæstu útgerðanna á Íslandi var um fimmtán milljarðar króna á síðasta ári og greiddu eigendur þeirra sér samtals um 6,8 milljarða í arð. Útgerðarfyrirtæki hafa verið að sýna afar góða afkomu síðustu ár og flest þeirra eiga og reka fiskvinnslustöðvar samhliða skipaútgerð.Brynar NíelssonBrynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur mega endurskoða margt í ríkisreikningnum og vill skoða heildarmyndina. „Ég vil að þetta sé skoðað í stóra samhenginu. Ríkissjóður blæs út nær stjórnlaust og við þurfum að spara í rekstri. Ég er viss um að við getum sparað á mörgum sviðum án þess að það komi niður á þjónustunni sem hið opinbera veitir. Ég er sannfærður um að það sé farið illa með opinbert fé,“ segir Brynjar sem telur mega endurskoða þennan útgjaldalið. „Hins vegar eru margir mun stærri útgjaldaliðir sem hækka nánast stjórnlaust án þess að menn geri sér grein fyrir þörfinni.“ Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir þessa ráðstöfun og telur útgerðina vera aflögufæra. „Þetta er stór útgjaldaliður þar sem þjóðin kemur til móts við greinina með ákveðnum hætti,“ segir Árni Páll. „Á meðan útgerðin greiðir lágmarksveiðigjöld ættum við að skoða svona útgjaldaliði þar sem þjóðin hleypur undir bagga með greininni og hjálpar til við greiðslur launa.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira