„Ekki hægt að eiga við svona trega menn“ Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2014 10:20 Sigga á Grund segir margar vinnustundir liggja á bakvið hvert verk. Mynd/Sigga á Grund „
Nú er ég alveg steinhætt. Það er ekkert hægt að eiga við svona trega menn,“ segir listakonan Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Sigga á Grund, sem kveðst hætt að sækja um listamannalaun eftir að hafa sótt um fjórtán sinnum og jafnoft verið neitað. Sigga segist nú byrjuð að hugsa um allt annað. „Nú er ég að hugsa um heiðurslaun listamanna. Þá get ég safnað í sarpinn og bætt við verkum. Það er rennerí af fólki sem bæði kemur hingað heim til mín, sem ég hef mikla ánægju af, og niðri á safni í Tré og list [í Flóahreppi]. Þar eru líka verk frá mér og ég þyrfti endilega að geta bætt við þetta. Ég hef voða lítið púður að bæta við það þegar ég er að vinna fyrir aðra. Þá þarf ég á launum að halda og þess vegna fer ég fram á það að ég fái heiðurslaun listamanna. Sumir fá það.“ Sigga á Grund var í viðtali í Bítinu í morgun þar sem hún ræddi list sína og umsóknir um listamannalaun. „Maður verður svolítið útundan í þessum geira. Þetta er upp á það að geta safnað meira af verkum handa þeim sem vilja sjá verkin mín svo að þau fara ekki út um allt eins og þau hafa gert. Nú langar mig til að hafa þetta heima, hérna heima á safni,“ en hún segir marga koma til hennar á sjá verkin en að hún hafi selt megninu af verkunum frá sér þar sem alltaf sé unnið eftir pöntunum. Sigga lýsir sjálfri sér sem raunsæislistamanni. „Ég hef unnið mikið eftir þörfum fólksins. Ég veit ekki hvað ég hef ekki verið beðin um. Ég hef getað leyst þessar þrautir alveg ljómandi vel.“ Að sögn Siggu liggja margar vinnustundir liggja á bakvið hvert verk. „Ég er oft með fleiri en eitt verk í gangi í einu á borðinu. Vinnustundirnar eru margar því ég legg mikla vinnu í verkin og þess vegna hef ég líka náð góðum árangri.“ Hlusta má á viðtalið í heild sinni að ofan.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira