Bæta þarf umsýslu og framkvæmd samninga um varnir gegn sjávarmengun Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2014 16:11 Fram kemur í skýrslunni að á alþjóðavettvangi sé stöðugt unnið að endurskoðun og þróun á samningum um varnir gegn mengun hafsins af völdum skipa. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/E.Ól.
Stjórnvöld þurfa að tryggja betur en nú að breytingar á alþjóðlegum samningum um verndun hafs gegn mengun frá skipum skili sér inn í íslenskan rétt. Þetta er mat Ríkisendurskoðunar sem bendir jafnframt á að stjórnvöld þurfi að vinna skipulega að því að staðfesta alþjóðlega samninga á þessu sviði sem ekki hafa verið staðfestir en hafa þýðingu fyrir íslenska hagsmuni. Enn fremur þurfa stjórnvöld að tryggja öflugt eftirlit með framkvæmd samninganna. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um aðild Íslands að og framkvæmd á alþjóðlegum samningum um varnir gegn mengun sjávar frá skipum. „Íslensk stjórnvöld hafa staðfest (fullgilt) nokkra slíka samninga en með því að staðfesta alþjóðlegan samning lýsir ríki því yfir að það sé bundið af ákvæðum hans. Einn mikilvægasti samningurinn á þessu sviði er svokallaður MARPOL-samningur (e. The International Convention for the Prevention of Pollution from Ships). Sex viðaukar hafa verið gerðir við þennan samning sem lúta að ólíkum þáttum mengunarvarna. Þar af hafa íslensk stjórnvöld staðfest fjóra. Þá á Ísland aðild að sjö öðrum alþjóðasamningum um þessi mál. Fram kemur í skýrslunni að á alþjóðavettvangi sé stöðugt unnið að endurskoðun og þróun á samningum um varnir gegn mengun hafsins af völdum skipa. Íslensk stjórnvöld hafi lítinn þátt tekið í þessari vinnu. Þá hafi breytingar á þeim samningum sem Ísland hefur staðfest aðeins að litlu leyti skilað sér inn í íslenskan rétt. Ríkisendurskoðun hvetur umhverfis- og auðlindaráðuneytið til að tryggja að ný og endurskoðuð ákvæði samninganna verði innleidd í íslenskan rétt á markvissan hátt og þeim framfylgt. Þá telur Ríkisendurskoðun að skýra þurfi hlutverka- og ábyrgðarskiptingu á þessu sviði milli ráðuneytisins, Umhverfisstofnunar og annarra aðila sem tengjast málaflokknum. Fram kemur að umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafi unnið að smíði reglugerðar til að tryggja innleiðingu á staðfestum viðaukum MARPOL-samningsins í íslenskan rétt. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að flýta þessari vinnu. Þá kemur fram að íslensk stjórnvöld hafi ekki staðfest viðauka IV og VI við MARPOL-samninginn. Sá fyrri fjallar um varnir gegn skólpmengun frá skipum og hinn síðari um loftmengun frá þeim. Ísland hafi heldur ekki staðfest fimm aðra samninga sem varða varnir gegn mengun hafsins né þrjár bókanir við samninga sem það á aðild að. Ríkisendurskoðun hvetur umhverfis- og auðlindaráðuneytið til að vinna skipulega að því að staðfesta samninga á þessu sviði sem þýðingu geta haft fyrir hagsmuni Íslands. Ýmis ákvæði alþjóðlegra samninga á sviði umhverfismála hafa verið innleidd í íslenskan rétt með gildistöku löggjafar Evrópska efnahagssvæðisins hér á landi. Dæmi eru um að ákvæði samninga um mengunarvarnir á hafinu sem Ísland hefur ekki staðfest hafi verið innleidd hér með þessum hætti. Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að umhverfis- og auðlindaráðuneytið láti greina að hve miklu leyti ákvæði slíkra samninga eru uppfyllt og meti mögulegan kostnað þess og ávinning að staðfesta þá formlega. Loks hvetur Ríkisendurskoðun Umhverfisstofnun til að tryggja öflugt eftirlit með framkvæmd alþjóðlegra samninga um varnir gegn mengun sjávar frá skipum,“ segir í frétt Ríkisendurskoðunar. Samkvæmt 9. grein laga um Ríkisendurskoðun getur stofnunin kannað hvernig stjórnvöld framfylgja áætlunum, lagafyrirmælum og skuldbindingum á sviði umhverfismála. Þá getur hún kannað árangur af fjárframlögum ríkisins til þessa málaflokks.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Sjá meira