Jákvæð rekstrarniðurstaða hjá Árborg fimmta árið í röð Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 11. desember 2014 11:34 Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar. Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson. „
Áætlunin gerir ráð fyrir því að ríflega 10 milljóna króna afgangur verði af rekstri á árinu 2015, þ.e. eftir fjármagnsgjöld, afskriftir og skatta. Er því um að ræða fimmta árið í röð sem gert er ráð fyrir jákvæðri afkomu af rekstri sveitarfélagsins og ljóst að varanlegur viðsnúningur hefur orðið hvað það varðar“, segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins þegar hún var spurð um niðurstöðu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins, sem var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær. Rekstrarútgjöld hækka umtalsvert milli ára og gætir þar verulegra áhrifa af kjarasamningsbundnum launahækkunum sem falla til á síðari hluta ársins 2014 og á árinu 2015. Sem dæmi má nefna hækka rekstrargjöld vegna fræðslu- og uppeldismála um 330 millj.kr. frá áætlun 2014, með viðauka, til fjárhagsáætlunar 2015. Rekstrarafgangur fyrir fjármagnsgjöld og skatta er áætlaður 407,5 millj.kr. „Fjárfestingar eru áætlaðar meiri en verið hafa síðustu ár, að árinu 2014 undanskildu, en áætlun gerir ráð fyrir fjárfestingu árið 2015 fyrir 792 millj.kr. Stór fjárfestingarverkefni eru mun meira áberandi en síðustu ár, þ.e. viðbygging við Sundhöll Selfoss og Sunnulækjarskóla á Selfossi og framkvæmdir vegna hreinsistöðvar fráveitu. Eru verkefni því heldur færri en verið hafa síðustu ár, en að sama skapi er hvert og eitt þessara stærri verkefna fjárfrekara“, segir Ásta. Þrátt fyrir að þessi stóru verkefni taki til sín stærstan hluta þess fjármagns sem ætlað er til framkvæmda á næsta ári eru ýmis smærri verkefnum á dagskrá, s.s. viðhald gangstétta, endurbætur á tjaldsvæðum, vatnsöflun o.fl. Þá verður ráðist í framkvæmdir við endurbætur á Tryggvagötu á Selfossi og haldið áfram við lagningu göngustígs á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar, auk þess sem unnið verður að viðhaldi ýmissa fasteigna í eigu sveitarfélagsins. „Verkefni næsta árs eru því af ýmsum toga og munu kalla á talsvert mikla aðkeypta vinnu. Sum verkefnanna hafa þegar verið boðin út, önnur eru í útboðsferli og ljóst að framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem framundan eru kalla á talsverðan mannafla“, bætir Ásta við. Fjárhagsætlunin gerir ráð fyrir að skuldir og lífeyrisskuldbinding verði 10,4 milljarðar 2015. Í framkvæmdir við hreinsistöðina eru áætlaðar 35 m.kr. á næsta ári, , 150 m.kr. 2016 og 75 m.kr. 2017, og þá verði verkefninu lokið. Á þessu ári hefur um 40 m.kr. verið ráðstafað í verkefnið, þ.e. undirbúning, hönnun, útboðsgögn og tækjakaup. Í þriggja ára áætlun er síðan gert ráð fyrir að hefjast handa við endurbætur í fráveitu á Eyrarbakka og Stokkseyri. Áætlað er að skuldahlutfall verði áfram undir viðmiðum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira