„Þetta er eins og sveitasíminn í gamla daga“ Atli Ísleifsson skrifar 20. desember 2014 20:23 Hafnfirðingurinn Guðrún Magnúsdóttir segir mögulegt að nágrannar séu að hlusta á símtal hennar og fréttamanns. Mynd/Getty/Facebook „
Þetta er bara eins og sveitasíminn í gamla daga. Maður getur bara tekið upp tólið og hlustað á samtal annarra manna,“ segir Guðrún Magnúsdóttir, íbúi við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði, en Guðrún og fjölskylda hennar eiga í miklum vandræðum með símann á heimilinu þessa dagana. Guðrún segir að upphaflega hafi þau fengið sent bréf þar sem sagt var að til stæði að laga netið hjá hjá þeim þann 15. desember og að það yrði netlaust þann daginn. „Síðan þá höfum við ekki getað horft á sjónvarp, ekki farið á netið í tölvunni eða í farsímanum. Svo er það heimasíminn. Manneskjan á neðri hæðinni gæti verið að hlusta á símtalið okkar núna,“ segir Guðrún létt í bragði í samtali við blaðamann Vísis. „Við erum líka óvart búin að heyra í henni vera að tala við einhvern í símann og þegar þú hringir í mig þá hringir líka síminn hjá henni.“ Guðrún segist ekki vita hvort ástandið sé eins í öðrum húsum í götunni þar sem einnig er unnið að viðgerðum. „En hér hafa átt sér stað þriggja manna símtöl. Í gær ætlaði ég að hringja í dóttur mína og tek upp tólið og heyri þá að einhverjir eru að tala saman. Ég rétti manni mínum tólið og hann heyrði þá líka þetta samtal. Þá var þetta nágranninn að ræða við einhvern.“Ertu búin að heyra eitthvað krassandi?„Nei, en maður gæti svo sem verið að segja einhver leyndarmál þegar annar er að hlusta. Við höfum aldrei lent í einhverju svona áður. Nettengingin hefur verið mjög léleg í þessu húsi, en það er Míla sem er að laga þetta. Þeir eru þó ekki vissir um hvort þeir nái að laga þetta fyrir jól.“Það verður því mögulega opið upp á gátt hjá ykkur ef svo má segja fram yfir jól?„Já, mögulega. Svo erum við líka að velta því fyrir okkur hver muni borga símreikninginn. Hvort við séum að hringja á kostnað nágrannans eða öfugt. Við erum búin að hringja fjórum, fimm sinnum út af þessu, en þeir geta ekki gert neitt í þessu fyrr en á mánudaginn og segja að óvíst sé hvort þetta verði komið í lag fyrir jól.“
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira