Flugslysið á Vatnsleysuströnd: "Vélin var komin á hvolf og það var komið fullt af fólki í kringum hana“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 30. júní 2014 07:00 TF-Sýn var við æfingar í grennd slyssins. VÍSIR/ÞÞ „
Vélin var komin á hvolf og það var komið fullt af fólki í kringum hana,“ segir Gísli Þór Þórarinsson sem kom að flugvél sem þurfti að nauðlenda á golfvellinum á Vatnsleysuströnd í gær. Kona og maður voru um borð í flugvél sem missti afl í mótor þegar hún var úti yfir sjónum skammt frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd. Fólkið nauðlenti á golfvelli, en í lendingunni kollsteyptist vélin og endaði á hvolfi. Vélin var illa farin eftir nauðlendinguna en fólkið slapp við alvarleg meiðsl og gat gengið í burtu frá vélinni. „Hún var töluvert löskuð að framan eftir veltuna en þetta hefur samt örugglega verið nokkuð mjúk lending hjá honum, fagmannlega lent. Hún hefur bara kollsteypst og farið hring yfir sig,“ útskýrir Gísli Þór. TF-Sýn, þyrla landhelgisgæslunnar var samkvæmt heimildum fréttastofu, við æfingar í grennd við slysstað þegar flugmaður þyrlunnar heyrði neyðarkall flugmanna vélarinnar sem nauðlenti, sem er að gerðinni Diamond D A20 og er kennsluvél frá Flugskóla Keilis. Gísli Þór segir að bæði fólkið sem var um borð í vélinni og aðrir nærstaddir hafi forðað sér frá vélinni. „Það ganga allir, bæði flugmenn og nærstaddir frá vélinni. Líklega vegna þess að fólk óttaðist einhverja sprengihættu, eða eitthvað slíkt. Og í því lendir þyrla Landhelgisgæslunnar. Líklega hafa flugmennirnir sent út neyðarkall. Við mættum þarna tveimur lögreglubílum, slökkviliðsbíl og tækjabíl.“ Slysið verður rannsakað af Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Tengdar fréttir Reyndu að nauðlenda á annarri braut golfvallarins á Vatnsleysuströnd Kona og maður voru í hættu þegar flugvél sem þær voru í missti vélarafl úti yfir sjónum, skammt frá frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd um klukkan fimm í dag. Fréttastofa fór á staðinn. 29. júní 2014 20:16 Flugvél nauðlenti á Vatnsleysuströnd og endaði á hvolfi Tveir voru um borð og slösuðust ekki alvarlega, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Reykjanesbæjar. Þeir fengu áfallahjálp í sjúkrabíl strax eftir slysið. 29. júní 2014 17:28 Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Sjá meira
Reyndu að nauðlenda á annarri braut golfvallarins á Vatnsleysuströnd Kona og maður voru í hættu þegar flugvél sem þær voru í missti vélarafl úti yfir sjónum, skammt frá frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd um klukkan fimm í dag. Fréttastofa fór á staðinn. 29. júní 2014 20:16
Flugvél nauðlenti á Vatnsleysuströnd og endaði á hvolfi Tveir voru um borð og slösuðust ekki alvarlega, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Reykjanesbæjar. Þeir fengu áfallahjálp í sjúkrabíl strax eftir slysið. 29. júní 2014 17:28