Tónlist

Kalkbrenner kemur fram á Sónar

Freyr Bjarnason skrifar
Eitt stærsta nafnið í danstónlistarheiminum spilar á Sónar í Reykjavík á næsta ári.
Eitt stærsta nafnið í danstónlistarheiminum spilar á Sónar í Reykjavík á næsta ári.
Tólf listamenn hafa bæst við Sónar-hátíðina sem verður haldin í annað sinn í Hörpu 13. til 15. febrúar.

Tvö af stærstu nöfnum danstónlistarinnar, Paul Kalkbrenner og Bonobo, eru á meðal þeirra. Einnig hefur bæst við Bretinn James Holden, sem hefur unnið með Radiohead, Madonnu og Depeche Mode. Áður hafði Major Lazer verið tilkynntur á hátíðina.

„Að staðfesta Paul Kalkbrenner og Major Lazer á Sónar Reykjavík er mikil viðurkenning fyrir okkur og þá umfjöllun sem hátíðin í febrúar síðastliðnum fékk,“ segir skipuleggjandinn Björn Steinbekk.

„Að listamenn af þessari stærðargráðu spili á hátíð sem selur 3.500 miða er líklega einstakt og að sömu listamenn séu tilbúnir til að spila í 1.600 manna sal er fáheyrt. Þetta sýnir okkur að sú stefna að vera með litla hátíð með stórum nöfnum er sannarlega möguleg.“

Hljómsveitirnar Moses Hightower, Ojba Rasta, Vök og Haleluwah hafa einnig bæst í hópinn, ásamt Steve Sampling, Futuregrapher, Skurken, Muted og DJ Yamaho. Áður hefur verið tilkynnt um komu Hjaltalín, Kölsch, Daphni, Sykurs og Sometime.

Enn á eftir að bæta við flytjendum og verða þeir samtals um sextíu talsins.

Miðasala á Sónar Reykjavík 2014 er í fullum gangi á midi.is og harpa.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×