Selur hár sitt til að fjármagna sýningu Álfrún pálsdóttir skrifar 27. mars 2013 06:00 hvergi bangin Myndlistakonan Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir ætlar að selja 50 sentimetra af hári sínu til að fjármagna næstu sýningu en hún hefur verið með hár niður á mjóbak frá því hún var níu ára gömul. Mynd/ÁGÚST aTLASON „
Ég man ekki alveg hvenær mér datt í hug að fara þessa leið, kannski hef ég orðið fyrir áhrifum frá Vesalingunum sem ég sá í leikhúsi í fyrra,“ segir myndlistarkonan Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir en hún hefur sett hár sitt á uppboð á vefsíðunni Bland.is. Tilgangurinn með hársölunni er að fjármagna næstu sýningu Ólafar en hún vonast til að fá hátt í 100 þúsund krónur fyrir 50 sentimetra af hári sínu. Ólöf hefur verið með þykkt og mikið hár niður á mjóbak síðan hún var níu ára gömul og það verða því mikil viðbrigði fyrir hana að stytta hárið við hnakka eins og markmiðið er. „Ég er hvergi bangin núna en hver veit. Kannski á ég eftir að grenja mig í svefn þegar ég læt verða af þessu,“ segir Ólöf hlæjandi en auk þess að vera myndlistarkona starfar hún sem verkefnastýra hjá Edinborg, menningarmiðstöð á Ísafirði, þar sem hún er búsett. „Ég hef alltaf verið með sítt hár, tók meðal annars þátt í Ungfrú Íslandi árið 2002 og var þekkt þar sem stelpan með síða hárið. En maður hefur gott af því að breyta til,“ segir Ólöf, en hún hlaut titilinn Ljósmyndafyrirsæta ársins í téðri keppni. Ólöf er að vinna ljósmyndaverk í tengslum við hárið en hún hefur löngum viljað nýta það í listsköpun sinni. Það er því gott að geta nýtt hárið í listina og við fjármögnun hennar. Hún hefur fengið til liðs við sig hárgreiðslukonu og ljósmyndara og saman ætla þau að festa ferlið við að klippa hárið á filmu sem lið í listgjörningnum. Fimm dagar eru eftir af uppboðinu og eins og fyrr segir vonast Ólöf til að safna hátt í 100 þúsund krónum. „Þetta kostar það að setja upp sýningu en ég er að vona að einhver félagasamtök taki sig saman, bjóði í hárið og gefi það svo til góðgerðamála. Eins og hárkollugerð fyrir krabbameinssjúka. Það væri frábært.“
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira