Charlie Morgan orðinn frægasti boltastrákur heims Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2013 10:30
Charlie Morgan er orðinn frægasti boltastrákur heims eftir atvik gærkvöldsins. Eden Hazard leikmaður Chelsea fékk þá rautt spjald fyrir að sparka í hann þegar Morgan reyndi að tefja leikinn með því að leggjast á boltann. Enskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um málið í gærkvöldi og í morgun. Charlie Morgan ætlaði greinilega að gera sitt til að hjálpa Swansea að komast í úrslitaleik enska deildarbikarsins en hann skrifaði um markmið sitt fyrir leikinn inn á twitter-síðu sinni. „Síðasti leikurinn hjá kóngi allra boltastráka #þörfáþví #tefja," skrifaði Morgan á Twitter síðu sína fyrir leikinn í gærkvöldi en þar skrifaði hann einnig um það að hann væri spilandi stjóri boltastráka þetta kvöld og ætlaði að spila sjálfum sér fyrir aftan mark heimaliðsins í hvorum hálfleik. Charlie Morgan verður 18 ára gamall á þessu ári og var að hlaupa í skarðið á þessum leik en boltastrákarnir eru flestir yngri. Það hefur líka komið í ljós að Morgan er vel tengdur innan Swansea. Faðir hans er nefnilega David Morgan sem er starfandi aðstoðar stjórnarmaður hjá félaginu. Charlie Morgan ætlar ekki að kæra Eden Hazard fyrir þessa "árás". Charlie Morgan er að upplifa sínar fimmtán mínútur af frægð því hann er nú kominn með yfir 81 þúsund fylgjendur á twitter eftir atvik gærkvöldsins. Það er hægt að sjá atvikið með því að smella hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira