Erlent

Hinsegin fólk í sendinefnd Bandaríkjanna í Sochi

Billie Jean King mun fara fyrir sendinefnd Bandaríkjamanna til Sochi.
Billie Jean King mun fara fyrir sendinefnd Bandaríkjamanna til Sochi.
Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlar ekki að vera viðstaddur opnunar- eða lokaathöfn Vetrarólympíuleikanna í Sochi í Rússlandi á næsta ári.

Enginn fyrrverandi forseti eða varaforseti verður heldur viðstaddur og forsetafrúin ætlar einnig að láta sig vanta. Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 2000 sem bandaríkjamenn senda engan af sínum hæst settu embættismönnum á Ólympíuleika.

Talsmaður Obama segir að þetta skýrist af því að forsetinn hafi ekki pláss fyrir Rússlandsheimsókn í dagskrá sinni, en afstaða Rússa til samkynhneigðra, sem hefur verið harðlega gagnrýnd, hefur vafalaust mest áhrif.

Og það vekur athyglil að í sendinefnd Bandaríkjamanna sem fer á leikanna, og Hvíta húsið velur, eru tvær samkynhneigðar íþróttakonur, tennis stjarnan Billie Jean King, og Íshokkíspilarinn Caitlin Calhow.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×