Íslenski boltinn

Skelfileg mistök hjá markverði KB

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigþór Marvin Þórarinsson náði forystunni fyrir Stál-Úlf gegn KB í 4. deildinni á dögunum með skrautlegu marki.

Sigþór tók þá aukaspyrnu rétt fyrir framan miðlínu vallarins og sendi boltann inn á vítateig Breiðhyltinga. Markús Vilhjálmsson, markvörður KB, misreiknaði boltann sem skoppaði yfir hann og hafnaði í netinu.

Stál-Úlfur gekk á lagið og vann 3-1 sigur. Þetta er í annað skiptið á skömmum tíma sem Stál-Úlfur fær mark á silfurfati frá markverði andstæðinganna. Hitt markið má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×