Sprúðlandi spilamennska Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 28. ágúst 2012 14:00 akob Frímann vakti lukku í Hörpu á laugardagskvöldið. Mynd/Bent Marinósson
Jakob Frímann Magnússon er maður ekki einhamur, það hefur löngum verið vitað. Um feril hans þarf ekki að fara mörgum orðum – og þó. Sólóplötur hans hafa ekki farið mjög hátt á síðustu árum, enda löngu uppseldar og fáar, ef nokkrar, til á geisladiskum. Það stendur hins vegar til bóta. Eitt af sjálfum Jakobs er Jack Magnet, en undir því heiti lék hann djassbræðing í borg englanna, Los Angeles, á árunum fyrir og um 1980. Jack þessi steig á stokk í Hörpu á laugardagskvöldið, en tónleikarnir voru hluti af Jazzhátíð Reykjavíkur. Í Bandaríkjunum kynntist Jakob gítarleikaranum og upptökustjóranum Paul Brown. Það var því við hæfi að fá hann til landsins að hita upp fyrir Jack Magnet. Það gerði Paul með sóma, fór hamförum á gítarinn ásamt Friðriki Karlssyni. Undir lék Moses Hightower og sló ekki feilnótu. Sérstaklega var magnað að hlusta á trommarann Magnús Tryggvason Eliassen. Samleikur þeirra Pauls og Friðriks stóð þó upp úr. Sá síðarnefndi upplýsti að þeir hefðu fyrst hist fyrr um daginn og sannar það enn einu sinni að tónlistin er alheimstungumál. Þeir léku við hvern sinn fingur, sóluðu sig saman gegnum lögin og fléttuðu tónunum saman. Minntu helst á smástráka með nýja dótið sitt, slík var spilagleðin og hún smitaði út frá sér. Eftir hlé steig sjálfur Jack Magnet á svið og ekki minnkaði spilagleðin við það nema síður væri. Hann hóf leik sinn á rólegu píanólagi með aðstoð söngsveitar. Rólega farið af stað, en á kynningum Jakobs, sem hann mælti af munni fram með sinni mögnuðu orðkynngi, mátti ljóst vera að von var á meiri hita. Og hann kom. Kvintettinn steig fram og bræðingurinn hófst. Það var hrein unun að fylgjast með Jakobi á sviðinu. Hann sneri sér í allar áttir og lék á það hljómborð sem við átti hverju sinni og flygilinn þegar svo bar undir. Fílingurinn leyndi sér ekki og Korgurinn hristist eins og nafni hans í upphrærðu pressukönnukaffi. Það gleymist stundum hve ofboðslega flinkur hljóðfæraleikari Jakob Frímann Magnússon er. Á sviði bræðingsins er hann á heimavelli, listilega fléttaðar línur á hljómborðinu kölluðust á við hin hljóðfærin, en þar var valinn maður í hverju rúmi, taktskiptingar, sóló og umfram allt; sprúðlandi spilagleði sem reif salinn með sér. Frábærir tónleikar og Jack Magnet mætti halda meira af þeim. Eini gallinn – og hann var nokkuð stór – var hve grátlega stuttir þeir voru. Með uppklappslögum entist dagskrá Jakobs ekki í fjörutíu mínútur, sem var synd, því góð var hún.
Mest lesið Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Lífið Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir Lífið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning Laufey treður upp með Justin Bieber Tónlist „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Lífið Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Lífið „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Fjölgar mannkyninu enn frekar Lífið Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Lífið Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Djúsí Ceasar vefja sem klikkar seint Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Fjölgar mannkyninu enn frekar Berjamó með sjálfum Berjakarlinum Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Robert Redford er látinn Norska konungsfjölskyldan krefst breytinga á heimildarmynd Netflix Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Fögur hæð í frönskum stíl „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu „Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“ Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa „Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“ Ein sú fegursta komin á fast Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina Lifði með fjögurra prósenta sjón án greiningar Adolescence, The Studio og Colbert komu, sáu og sigruðu Kettir með engar rófur til sýnis Sjá meira