Stjörnu-sýning í Nokia-höllinni 13. janúar 2012 07:00 Einn af sigurvegurum kvöldsins var hin unga Emma Stone. Hún var valin bæði leikkona ársins í drama-og gamanflokki og þá þótti klæðaburður hennar einstaklega vel heppnaður af tískuspekúlöntum.
Engin hörgull var á stórstjörnum þegar People‘s Choice Awards voru afhent í Nokia-höllinni í Los Angeles þrátt fyrir að helstu sigurvegarar kvöldsins hefðu verið víðsfjarri. Bandaríska söngkonan Katy Perry stóð uppi sem sigurvegari á People‘s Choice Awards sem fóru fram á miðvikudagskvöld. Perry hlaut fimm verðlaun en ákvað að draga sig út úr verðlaunaafhendingunni á þriðjudagskvöld. Ástæðan var augljós, flutningabílar voru mættir að villu hennar og Russells Brand, fyrrum eiginmanns söngkonunnar, til að tæma hana en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum skildu Brand og Perry eftir rúmlega tveggja ára hjónaband skömmu eftir jól. Alls eru veitt fjörtíu verðlaun á People‘s Choice Awards. Og því óþarfi fara nákvæmlega ofaní saumana á hverjum einasta verðlaunaflokki en hátt í tuttugu milljón atkvæði bárust gegnum annað hvort net eða síma samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum hátíðarinnar. Meðal annarra verðlaunahafa má nefna að Emma Stone fékk tvenn verðlaun, sem besta drama-og gamanleikkona, Johnny Depp var valinn leikari ársins og Adam Sandler var heiðraður fyrir gamanleik sinn þrátt fyrir að kvikmyndir hans í ár hafi verið rifnar á hol af gagnrýnendum. „En það sem mestu máli skiptir er að þið, áhorfendur, kunnið að meta verk mín,“ sagði Sandler. Þá var Morgan Freeman heiðraður fyrir framlag sitt til hvíta tjaldsins. Í sjónvarpsflokknum skiptust verðlaunin nokkuð jafnt en gamanþátturinn How I Met Your Mother fékk tvenn verðlaun; Neil Patrick Harris var kosinn besti gamanleikarinn og þátturinn sjálfur besti grínþátturinn. Nina Dobrev úr Vampire Diaries var valin besta drama-leikkonan en Nathan Filion úr Serenity fékk sömu verðlaun í karlaflokki. Það var síðan Lea Michele sem var útnefnd besta gamanleikkonan í sjónvarpi fyrir frammistöðu sína í Glee. freyrgigja@fretttabladid.is
Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filipíska löggan mætti Tónlist Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? Sjá meira