Mun ekki mygla á rassinum 15. janúar 2012 22:00 Sigtryggur hefur komið nálægt flestum geirum íslenskrar tónlistar á löngum ferli og telur þá reynslu koma til með að gagnast sér í nýju starfi. fréttablaðið/gva
Tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson, einnig þekktur sem Bogomil Font, tekur innan skamms við stöðu framkvæmdastjóra Útón, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Hann sagði Kjartani Guðmundssyni frá bransanum, góðri gagnrýni og Kópavogi. „Þegar stjórnin bað mig um að taka við keflinu, að minnsta kosti um stundarsakir, hugsaði ég með mér að líklega væri ég ekki rétti maðurinn í djobbið. Ég velti fyrir mér hvort í þessu starfi feldust ekki allt of miklar viðskiptapælingar fyrir mig. En auðvitað hef ég alltaf verið viðloðandi viðskipti, því það að vera í hljómsveit er bara bissness. Ég er tilbúinn í að taka þennan slag," segir tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson, einnig þekktur sem Bogomil Font, sem tekur við starfi framkvæmdastjóra Útón, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, 1. febrúar næstkomandi. Sigtryggur hefur setið í stjórn Útón frá stofnun árið 2006 og er nú ráðinn tímabundið í stöðu framkvæmdastjóra til hálfs árs, en að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhaldið. Anna Hildur Hildibrandsdóttir, sem gegnt hefur stöðunni frá upphafi, þurfti frá að hverfa með skömmum fyrirvara og segist Sigtryggur taka við góðu og vel smurðu búi frá henni. „Ég var beðinn um að taka við vegna þess að ég veit betur hvernig þetta batterí virkar en einhver sem kæmi kaldur inn af götunni. Þótt viðkomandi væri viðskiptafræðingur skipti það harla litlu máli, því tónlistarbransinn er mikið kviksyndi og nauðsynlegt að kunna á þær síbreytilegu reglur sem í honum gilda. Þessa dagana er ég að undirbúa mig tæknilega undir starfið, að lesa samninga, skýrslur og reglugerðir. Þetta er dálítið mikið mál." Hef góða yfirsýn yfir bransannNú hefur þú verið lengi að, tekið þátt í mikið af þeim útflutningi íslenskrar tónlistar sem best hefur heppnast og verið einkar virkur hljóðfæraleikari. Hvernig kemur það til með að nýtast þér í nýju starfi? „Fyrst og fremst veitir þetta mér yfirsýn. Ég kem með aðra hluti að borðinu en Anna Hildur, sem hafði meðal annars starfað sem umboðsmaður og blaðafulltrúi í bransanum, en ég gæti trúað að mínar áherslur verði frekar raktar til þessa virka tónlistarmannageira. Það kemur í ljós hvernig spilast út því, en Útón er í eðli sínu upplýsingaveita fyrir tónlistarfólk. Ekki bara popphljómsveitir heldur hefur Útón verið að vinna meira með djass, klassík og aðra tónlistargeira á undanförnum árum. Sjálfur hef ég reynslu af flestum geirum íslenskrar tónlistar, ekki síst þeim sem lúta að nýsköpun í tónlist, og það ætti að nýtast mér vel, auk þess sem samskipti og samvinna við fólk eru einn stærsti hluti starfsins. Starf Útón skilar árangri á ýmsum vettvangi sem kemst kannski ekki alltaf í blöðin en er sístækkandi snjóbolti sem margir eru að ýta. Íslensk tónlist hefur farið mjög vaxandi, tekið kipp síðustu ár og ansi margir hafa náð að skapað sér starfsgrundvöll erlendis. Þar hefur Útón sannarlega hjálpað til. Það eru margir möguleikar í stöðunni og skilningurinn á mikilvægi skapandi greina innan viðskiptageirans á Íslandi er alltaf að aukast. Eitt af baráttumálunum er að koma upp sjóði sem getur stutt betur við bakið á þeim tónlistarmönnum sem eru að reyna að komast úr landi, tónlistarútflutningssjóð. Til dæmis var hljómsveitinni Caterpillarmen boðið á tónleikaferð með Tuneyards í desember, en umsóknarfrestur í tónlistarsjóð rann út 1. nóvember. Það þarf að vera til batterí sem getur brugðist við með skjótum hætti." Hvernig tilfinning er að sjá fram á nokkurs konar níu til fimm skrifstofustarf eftir öll þessi ár í óreglulegum tónlistarheimi? „Raunar lít ég ekki á þetta sem skrifstofuvinnu því ég verð líklega alltaf á iði. Það þarf að fara út af örkinni, sækja tónlistarhátíðir og fleira, svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að mygla á rassinum. Ég hef ekki unnið níu til fimm vinnu síðan 1988, en það er góð tilfinning að vinna út frá einhverju akkeri, eða móðurskipi eins og ég hef stundum kallað Útón. Í upphafi síðasta árs hugsaði ég með mér að kannski væri ekki vitlaust fyrir mann á mínum aldri að fá sér einhverja fastari vinnu, en svo hef ég bara haft svo mikið að gera í alls kyns fræðsluverkefnum og lausamennsku. Svo fékk ég áskorun um að gera þætti um íslenska tónlist á ÍNN, Kolgeitina, sem voru algjört einherjaverkefni en þróuðust í raun svo út í Hljómskálann á RÚV." Virðing fyrir þeim kjörkuðuTéðir Hljómskálaþættir, sem Sigtryggur gerir ásamt þeim Kidda í Hjálmum og Baggalútnum Braga Valdimar, voru sýndir á RÚV síðari hluta ársins sem leið og hlutu víðast hvar mikið lof. Sérstaka athygli vakti áramótaþáttur Hljómskálans, þar sem margir af helstu skemmtikröftum þjóðarinnar komu saman í einu allsherjar djammi og áhorfendur urðu meðal annars vitni að því þegar meistari Megas söng bakraddir hjá Ladda. Nú þegar eru hafnar upptökur á nýrri Hljómskálaþáttaröð, enda segist Sigtryggur hafa notið vinnunnar við gerð þáttanna. „Þessi þríhyrningur, ég, Kiddi og Bragi, náum vel saman og komum nýjum og skemmtilegum einkahúmor í gang. Frá upphafi vorum við harðir á því að í þáttunum þyrftum við að blanda einhverju nýju og skapandi saman við fræðsluefni. Við erum allir tónlistarmenn og höfum því ákveðinn aðgang að okkar kollegum sem almennir sjónvarpsmenn hafa oft ekki og allt gekk þetta glimrandi vel upp." Hvað með þá gagnrýni sem heyrðist að kvenkynsgestir bæru skarðan hlut frá borði í þáttunum? „Sú gagnrýni þótti mér góð og við brugðumst við henni. Raunar höfðum við alltaf í hyggju að gera sérstakan „girl power"-þátt eins og við kölluðum hann, en hann snerist af einhverjum ástæðum upp í annað þema, hvernig mögulegt væri að halda sér á lífi í þessum bransa í langan tíma. Þar var rætt við Megas, Ragga Bjarna og Ragnheiði Gísladóttur, sem er orðin heldri kona í bransanum og við lítum allir upp til, dýrkum og dáum enda mikill listamaður. Þegar maður eldist í þessum bransa fer maður að bera meiri virðingu fyrir þeim sem hafa nennu, kjark og þor til að starfa lengi sem listamenn." Argur yfir blindu réttarkerfiVar virðing af þessu tagi þá ekki til staðar þegar þú hófst að tromma með Þeysurunum fyrir rúmum þrjátíu árum? „Nei. Þá fannst mér allir sem komnir voru yfir þrítugt vera búnir að vera og ekkert hafa að segja. Maður var rosalega góður með sig og fannst það sem maður sjálfur var að sýsla alveg vera málið. Í nokkurs konar baráttu við alla og allt í kringum sig. Ungt fólk lendir oft upp á kant við umhverfi sitt, sérstaklega yfirvald af öllu tagi, og það er eðlilegt. Eins og góður maður sagði, þá er eitthvað að þeim sem rífa ekki kjaft tvítugir. En það er heldur ekki í lagi með þá sem eru á sama stað fimmtugir, enda ættu þeir þá að hafa fundið aðrar leiðir en þær að standa uppi á stól og æpa. Ég ber mikla virðingu fyrir fólki sem mótmælir og rífur kjaft. Það ber vott um heilbrigði í samfélaginu og guð forði okkur frá því að allir séu of stilltir. Til að mynda studdi ég níumenningana sem voru ákærðir fyrir árás á Alþingi af heilum hug og geri enn." Þú stóðst að stuðningsuppákomu fyrir níumenningana, en tengdasonur þinn er einn þeirra. Hafði þetta mál mikil áhrif á þig og þína fjölskyldu? „Mér fannst þetta hreinlega svo skammarlega fráleitt, og birtingarmynd þess hversu réttarkerfið getur verið blint, að fyrstu dómarnir sem féllu eftir hrun hafi verið ungt fólk sem mótmælti en ekki hvítflibbaglæpamenn sem unnu alvöru skaða. Í raun má segja að það hafi verið óþarfi að lenda í stimpingum við þingverði, en það verður líka að setja þessa atburði í samhengi við það sem átti sér stað í þjóðfélaginu á þessum tíma." Endurkoma Þeys misskilningurÚr því minnst er á Þey, hljómsveitina sem þú lést fyrst að þér kveða með á sínum tíma, þá urðu margir aðdáendur sveitarinnar fyrir vonbrigðum sumarið 2010 þegar umræddir endurkomutónleikar sveitarinnar urðu ekki að veruleika. „Þetta var allt saman byggt á misskilningi og ég þurfti aðeins að hvessa mig við Norræna húsið. Þar á bæ auglýsti fólk fram í rauðan dauðann endurkomu Þeysaranna, þegar raunin var sú að Guðlaugur Kristinn Óttarsson gítarleikari hafði sett saman dagskrá um Þey, sem var í fínu lagi en hefði ekki átt að kynna á þessum fölsku forsendum. Persónulega er ég dálítið á móti svona endurkomum. Hljómsveitin Þeyr, sem dæmi, var rosalega magnað fyrirbæri og ákveðið barn síns tíma. En að hittast þrjátíu árum síðar og spila þetta sama efni finnst mér pínu klígjulegt. Svona fortíðartenging þykir mér hamlandi fyrir skapandi hugsun. Fólk þarf að hafa sérstaklega góða ástæðu fyrir slíku, eins og þegar Sykurmolarnir komu aftur saman eitt kvöld til að bjarga fyrirtækinu okkar sem var að fara í hundana." Líður vel niðri við sjóinnTrommarinn ólst upp í Kópavogi og réði tilviljun því að hann fluttist þangað aftur fyrir nokkrum árum þegar hann festi kaup á gömlu ættaróðali ásamt eiginkonu sinni og systur hennar. Er gott að búa í Kópavogi? „Já. Húsið sem við keyptum þarfnaðist mikilla lagfæringa og ég var í þeim látlaust í eitt og hálft ár. Þetta er framtíðarhús og mér líður vel þarna niðri við sjóinn. Þess vegna höfðu þeir nú Klepp niðri við sjó, því það var talið að vatnið hefði róandi áhrif á geðsjúklingana. Svo finnst mér gaman að fara í Kópavogslaugina, en þar hitti ég oft gamla kollega föður míns úr fluginu sem er gaman að spjalla við um daginn og veginn. Ég fíla mig vel í félagsskap fullorðins fólks, ekkert síður en unglinga."
Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Lífið Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Fleiri fréttir Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Morten Harket greinist með Parkinson Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Sjá meira