Ingó týndist en fer ekki á taugum 5. janúar 2012 10:00 Salan á fyrstu sólóplötu Ingólfs Þórarinssonar var minni en búist var við. „
Hann náði einhvern veginn ekki í gegn. Hann fékk ekki þá útvarpsspilun sem hann hefur fengið oft áður og týndist svolítið,“ segir Eiður Arnarsson hjá Senu um fyrstu sólóplötu Ingólfs Þórarinssonar, Ingó, sem kom út fyrir jólin á vegum fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins seldust innan við eitt þúsund eintök af henni, sem er óvenju lítið þegar hinn vinsæli Ingó er annars vegar. „Við vorum að vonast eftir meiri sölu. Við bjuggumst ekki við neinu í líkingu við Veðurguða-plötuna en vorum að vonast eftir um þrjú þúsund seldum plötum,“ segir Eiður. Plata Ingós og Veðurguðanna sem kom út 2009 hefur selst í um fimm þúsund eintökum. Þar hjálpuðu ótrúlegar vinsældir lagsins Bahama sem kom út árið áður. Ingó sjálfur hefur enga eina skýringu á reiðum höndum. „Maður veit víst ekki neitt, það er það eina sem maður veit,“ segir hann. „Hún fékk lélega dóma á nokkrum stöðum, ég veit ekki hvort það hefur haft áhrif. Svo var þetta kannski ekki eins krakkamiðað og á fyrri plötunni. Náði ekki til eins víðs hóps.“ Sjálfur segist hann vera ánægður með plötuna og vonast til að fleira fólk gefi henni gaum. „Maður fer ekkert á taugum þó að platan seljist illa,“ segir hann og er hvergi af baki dottinn. - fb
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira