Lífið

Sameinuð þrátt fyrir svæsið framhjáhald

elly@365.is skrifar
myndir/cover media
Maria Shriver, 55 ára, og Arnold Schwarzenegger, 64 ára, sem skildu eftir 25 ára langt hjónaband, hafa sett upp giftingahringana á ný.

Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af Mariu í Beverly Hills að viðra hundinn þeirra og Arnold með félögum sínum í Idaho 29. desember síðastliðinn, eru þau bæði með hringana.



Í maí í fyrra varð ríkisstjórinn fyrrverandi í Kaliforníu uppvís að framhjáhaldi með húshjálpinni.

Þegar Maria komst að framhjáhaldinu og áttaði sig á því að tíu ára drengur þjónustukonunnar var nauðalíkur vöðvabúntinu tilkynnti hún manni sínum að hún hefði engan áhuga á hjónabandinu lengur, þau væru skilin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.