Biggi ósáttur við hollenska Maus 4. janúar 2012 08:15 Hollensk hljómsveit ber sama nafn og hin íslenska Maus, sem hefur legið í dvala undanfarin ár. „
Manni finnst ótrúlegt þegar einhver velur sér hljómsveitarnafn og prófar ekki að gúggla það. Það tekur ekki langan tíma," segir Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi Maus. Hollensk indípopphljómsveit með sama nafn og hin íslenska Maus hefur kveðið sér til hljóðs að undanförnu við dræmar undirtektir Bigga og félaga. Eru þeir að stela nafninu ykkar? „Annaðhvort eru þeir að stela því eða hafa skírt hljómsveitina án þess að vita af okkur," segir Biggi, sem reyndi að hafa samband við hina hollensku Maus á Facebook-síðu hennar. „Ég setti inn á síðuna þeirra tengil á heimasíðuna okkar og Wikipedia og þeir strokuðu það út eftir tvær mínútur. Það er eins og þeir hafi ekkert viljað vita af þessu," segir hann og hlær. „Þeir eru líka skírðir eftir sömu myndasögu og við," bætir hann við og á við Pulitzer-verðlaunaða myndasögu Arts Spiegelman. „Þetta er leiðinlegt því við erum ekkert hættir. Við höfum ekki gefið út dánartilkynninguna. Við erum búnir að gefa út plötur úti um allan heim í gegnum iTunes og í Þýskalandi. Núna eru þeir að spila mikið og eru komnir á þennan tónlistarhátíðarrúnt. Það eru örugglega einhverjir sem halda að þeir séu að fara að sjá okkur," segir Biggi en Maus, sem gaf síðast út hljóðversplötu fyrir níu árum, átti eitt sinn vinsæl lög í Finnlandi og spilaði víða erlendis. Fari svo að hin hollenska Maus haldi áfram að hunsa Bigga segir hann koma til greina að fara með málið lengra. „Við eigum einkarétt á nafninu í Evrópu þannig að við gætum verið ógeðslega leiðinlegir og þvingað þá til að breyta um nafn. En mann langar það ekkert." - fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira