Danskur leiklistarskóli með inntökupróf á Íslandi 1. febrúar 2012 14:00 Lars Henning, kennari við skólann, segir íslenska nemendur hafa eitthvað sérstakt fram að færa og þess vegna vilji þau koma hingað til lands til að leita að framtíðar leiklistarnemum. Björn Stefánsson, trommuleikari í Mínus, er nemandi við skólann en Sindri Birgisson, Ylfa Ösp Áskelsdóttir og Davíð Freyr Þórunnarson eru meðal fyrrverandi nemenda skólans.
Danski leiklistarskólinn Film-Teaterskolen Holberg ætlar að koma sérstaka ferð til Íslands þann 10. mars til að leita að framtíðar leiklistarnemun. Lars Henning, kennari og prófdómari hjá skólanum, segir að þau hafi góða reynslu af íslenskum nemendum sem eru oft ástríðufullir og sérvitrir. „Þetta er í fyrsta sinn sem við komum til Íslands til að halda inntökupróf," segir Lars Henning, kennari við danska leiklistarskólann Film-Teaterskolen Holberg, en skólinn ætlar að halda sérstök inntökupróf fyrir Íslendinga í mars. Skólinn er einn stærsti leiklistarskólinn á Norðurlöndunum sem kennir svokallaða „Method Acting" en fjölmargir Íslendingar hafa stundað nám við skólann í gegnum árin eins og leikararnir Sindri Birgisson, Ylfa Ösp Áskelsdóttir, Davíð Freyr Þórunnarson og svo Björn Stefánsson sem er nemandi í skólanum núna. Skólinn er til húsa í Kaupmannahöfn og tekur námið þrjú ár. „Við höfum mikla og góða reynslu af Íslendingum og við höfum haft nemendur frá öllum Norðurlöndunum gegnum tíðina en teljum að íslenskir nemendur skeri sig úr hópnum og hafi eitthvað sérstakt fram að færa," segir Henning og leggur áherslu á að að það sé mikilvægt fyrir skólann að vera með íslenska nemendur. „Þeir eru oftast mjög ástríðufullir, sérvitrir og horfa listrænum augum á lífið. Allt mjög mikilvægir eiginleikar hjá framtíðarleikurum." Inntökuprófið fer fram þann 10. mars í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og varir yfir heilan dag þar sem umsækjendur gera ýmsar æfingar ásamt því að mæta í viðtal hjá prófdómurum frá skólanum, þar á meðal Henning. Inntökuprófin fara fram á dönsku og ensku en nauðsynlegt er að kunna smá í dönskunni. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofuskólans gegnum netfangið malene@teaterskolen.com.- áp
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira