Kraftaverkastúlkan Þuríður 3. febrúar 2012 18:15 Áslaug Ósk Hinriksdóttir og dóttir hennar Þuríður sem hún kallar Maístjörnuna sína. mynd/ljósmyndir og list „
Staðan á minni stjörnu er ofsalega góð í dag. Hún fór í rannsóknir í byrjun janúar og kraftaverkin hjá henni halda áfram að gerast og æxlið fer minnkandi," segir Áslaug Ósk Hinriksdóttir, móðir Þuríðar Örnu Óskarsdóttur, níu ára, sem greindist með illvíga flogaveiki og góðkynja æxli í heila 25. október árið 2004, þá tveggja og hálfs árs gömul.Æxlið getur komið aftur og aftur „Þetta æxli sem Þuríður er með getur komið aftur og aftur þannig það er alltaf mikill kvíði og stress fyrir hverja myndatöku sem Þuríður fer í þótt hún sýni engar aukaverkanir. Þegar hún greindist aftur í maí árið 2010 ætluðum við einmitt að fara að ljúka þessum kafla í lífi okkar og byrja á nýjum og skemmtilegum kafla en því miður varð það ekki raunin," segir Áslaug.Lamaðist hægra megin eftir geislameðferð „Þuríður fór beint eftir þá greiningu til Svíþjóðar og lagðist undir svokallaðan „gammahníf" sem er geislameðferð og út frá henni lamaðist hún algjörlega á hægri hluta líkamans á einum sólarhring. Hún þurfti í kjölfarið að fara í fimm mánaða sterameðferð sem var hreint helvíti fyrir hana en lömunin gekk til baka. Hún var þá líka farin að fá krampa á hverjum degi aftur en í dag fær hún stöku sinnum krampa. Mér finnst virkilega sárt og erfitt að horfa upp á hana í krömpum en núna erum við bara á fullu að reyna að byggja hana upp líkamlega."Uppbygging fram undan „Hún var í fimleikum fyrir áramót hjá Ármanni þar sem fólk gerir allt fyrir hana. Við þurfum bara að nefna það, þá gera þau það. Það er ómetanlegt fyrir hana og okkur. Hún er annars að byrja í sjúkraþjálfun á hestum og strax eftir það förum við norður með hana í sjúkraþjálfun á skíðum. Við viljum hafa uppbyggingu Þuríðar sem fjölbreytilegasta þannig að henni finnist skemmtilegt. „Án félagsins okkar, Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, gæti Maístjarnan mín ekki farið í alla þessa þjálfun þar sem þetta kostar mikið og við höfum ekki efni á þessu sjálf. Það er ómetanlegt að hafa svona sterkt félag sem styður við bakið á okkur. Ég vil endilega koma því á framfæri líka að læknar og hjúkrunarfólk sem hafa séð um Þuríði eru gull af mönnum og gera allt til að hjálpa okkur. Við erum kannski ekki alltaf sátt við útkomuna en við komumst alltaf að sameiginlegri niðurstöðu."
Mest lesið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning South Park verður South America Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Kappsmál sett á ís Lífið Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Fleiri fréttir Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Sjá meira