Opnar kafaraskóla á Benidorm 29. september 2012 13:00 Héðinn Ólafsson stofnaði kafaraskóla á Benidorm ásamt félaga sínum, Alexander Manrique.
Héðinn Ólafsson og Alexander Manrique opnuðu saman köfunarskóla í strandborginni Benidorm á Spáni fyrir skemmstu. Héðinn hefur starfað við köfun hérlendis í ellefu ár og verður með annan fótinn úti á Spáni í vetur. „Þetta byrjaði þannig að Alexander nennti ekki að búa á Íslandi lengur og fluttist til Benidorm. Hann vann við köfun á þessu svæði og sá fljótlega að það var markaður fyrir köfunarskóla þar sem kennararnir töluðu ensku eða Norðurlandamál. Hinir skólarnir eru allir í eigu Spánverja og flestir kennararnir aðeins spænskumælandi,“ útskýrir Héðinn. Hann og Alexander eru báðir köfunarkennarar og hafa starfað sem slíkir í fjölda ára. Nýja kafaraskólann nefndu þeir Dive Benidorm og bjóða þeir upp á námskeið í köfun sem og ferðir fyrir þá sem eru með kafararéttindi. „Köfun er mjög vinsæl afþreying eins og hefur sýnt sig hér heima, vöxturinn er ótrúlegur.“ Alexander mun sjá um allan daglegan rekstur skólans en Héðinn mun deila tíma sínum milli Íslands og Spánar og kenna á báðum stöðum. „Ég er orðinn svo gamall og börnin mín öll uppkomin. Eiginkona mín kemur með mér út þannig að ég get þvælst á milli eftir því hvar vinnan er hverju sinni.“ Í tilefni stofnunar skólans býður Dive Benidorm fólki á byrjendanámskeið í köfun ásamt gistingu í viku fyrir aðeins 450 evrur. Tilboðið gildir út nóvember. Hægt er að fá nánari upplýsingar um skólann í síma 6993000. -sm
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira