Þykir vænst um fyrstu Edduna 24. febrúar 2012 00:00 Ragna Fossberg í góðum félagsskap leikkonunnar Juliu Stiles við vinnslu á myndinni, A little Trip to Heaven, árið 2005 Mynd/einkasafn
Ragna Fossberg á heiðurinn af útliti og gervi ótal þjóðþekktra persóna sem birst hafa íslensku þjóðinni í sjónvarpi og kvikmyndum síðustu áratugi. Ragna hlaut fjórðu Edduna fyrir störf sín á nýliðinni Edduhátíð. Lífið fékk að skyggnast inn í heim Rögnu og forvitnast um flottan feril hennar. Það er óhætt að segja að Ragna Fossberg eigi langan og farsælan feril að baki. Árið 1967 byrjaði hún að greiða þulum Ríkissjónvarpsins í aukavinnu og lauk svo námi í hárgreiðslu skömmu síðar. Enn í dag hvetur hún áhugasama um fagið að byrja á því að læra um hár. „Hár er svo stór partur af útliti fólks, þú sérð hárið miklu frekar en förðunina."Gott að vinna á Ríkisútvarpinu Árið 1971 var Ragna ráðin til starfa hjá RÚV og hefur starfað þar allar götur síðan þó með smá hléum á meðan hún hefur starfað við kvikmyndir og leikhús. Hún segir RÚV hafa verið einstakan vinnustað og stutt sig mikið. „Þeir hafa sem betur fer séð hag sinn í því að hleypa mér í önnur verkefni þar sem ég hef alltaf komið með aukna þekkingu til baka."Lærði mest af danska ríkissjónvarpinu Það er ekkert sem Ragna getur ekki gert þegar kemur að gervum. Hún býr til skalla, hárkollur, gervitennur og svo mætti lengi telja. Hún sá meðal annars um Spaugstofuna öll þau ár sem hún var framleidd af RÚV. Spurð um þessa þekkingu sína segist hún hafa lært hvað mest af danska ríkissjónvarpinu en þangað fór hún á vegum Ríkisútvarpsins hér á árum áður í þeim tilgangi að læra. „Svo fór ég í eitt ár til Los Angeles til þess að vinna við kvikmyndir og það var sko lærdómsríkt ár," segir Ragna sem slagar í þrítugustu bíómyndina sína um þessar mundir ásamt því að hafa starfað gríðarlega mikið í leikhúsunum við gervi, hár og förðun á ferlinum.Vann við hrikalegar aðstæður Ragna við við eina af fyrstu íslensku kvikmyndunum þegar hún var einmitt nýkomin heim frá LA. „Þetta var kvikmyndin Í skugga hrafnsins eftir Hrafn Gunnlaugsson og ég held ég geti sagt það óhikað að þetta voru þær allra hrikalegustu vinnuaðstæður sem ég hef kynnst. Vinnudagarnir fóru allt upp í tuttugu klukkustundir, fyrir utan það að koma sér á staðinn. Ég fór í öll verk, dró lélegt hjólhýsið mitt og tengdi það sjálf, var mikið úti við og það við slæmar aðstæður en það var meðal annars verið að brenna gúmmídekk til þess að skapa réttu stemninguna. Þetta var svolítið sjokk eftir að hafa verið með góða vinnuaðstöðu í flottum hjólhýsum sem litu út eins og hótelherbergi í Los Angeles.Stjörnur eru bara lifandi persónur Spurð um stærsta verkefnið sitt á ferlinum segir hún kvikmyndina No Such Thing sem tekin var í Bandaríkjunum og á Íslandi vera það allra stærsta. Meðal þeirra sem fóru með hlutverk í þeirri mynd voru leikkonurnar Helen Mirren, Julie Christie og síðast en ekki síst Baltasar Kormákur. Ragna segist vera alveg hætt að kippa sér upp við það að vinna með stórstjörnum. „Þetta eru allt lifandi persónur eins og aðrir. Þetta fólk kemur og fer og hefur ekkert meiri áhrif á mig en annað fólk."Fyrsta Eddan er besta Eddan Það má ætla að Ragna sé búin að ná mörgum markmiðum sínum á ferlinum og það staðfestir hún. „Hins vegar er eitt sem ég hef að leiðarljósi í starfi mínu og það er að þegar ég hætti að læra nýja hluti þá hætti ég. Í dag langar mig að fara að hægja örlítið á mér enda búin að vinna mikið í gegnum tíðina." Ragna fór heim með fjórðu Edduna á nýliðinni Edduhátíð og segir það alltaf jafn góða tilfinningu – þó þyki henni allra vænst um þá fyrstu. „Fyrsta Eddan er besta Eddan, bæði var það fyrsta árið sem hún var veitt, styttan er fallegust og valið fór fram í fagnefnd, þar af leiðandi skiptir hún mig mestu máli.Hleypur ekki eins hratt Ragna fagnar sextugasta og þriðja afmælisdeginum sínum í næstu viku og segir það hræðilegt að vera komin á þennan aldur með smá hæðnistón í röddu. „Nú er farið að síga á seinni hlutann því ekki lifir maður að eilífu. Svo hleypur maður ekki alveg eins hratt. En ætli ég megi ekki bara vera stolt af aldrinum," segir Ragna Fossberg að lokum. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Rögnu að störfum við hin ýmsu verkefni.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira