Lífið

Opnar kafaraskóla á Benidorm

Héðinn Ólafsson stofnaði kafaraskóla á Benidorm ásamt félaga sínum, Alexander Manrique.
Héðinn Ólafsson stofnaði kafaraskóla á Benidorm ásamt félaga sínum, Alexander Manrique.
Héðinn Ólafsson og Alexander Manrique opnuðu saman köfunarskóla í strandborginni Benidorm á Spáni fyrir skemmstu. Héðinn hefur starfað við köfun hérlendis í ellefu ár og verður með annan fótinn úti á Spáni í vetur.

„Þetta byrjaði þannig að Alexander nennti ekki að búa á Íslandi lengur og fluttist til Benidorm. Hann vann við köfun á þessu svæði og sá fljótlega að það var markaður fyrir köfunarskóla þar sem kennararnir töluðu ensku eða Norðurlandamál. Hinir skólarnir eru allir í eigu Spánverja og flestir kennararnir aðeins spænskumælandi,“ útskýrir Héðinn.

Hann og Alexander eru báðir köfunarkennarar og hafa starfað sem slíkir í fjölda ára. Nýja kafaraskólann nefndu þeir Dive Benidorm og bjóða þeir upp á námskeið í köfun sem og ferðir fyrir þá sem eru með kafararéttindi. „Köfun er mjög vinsæl afþreying eins og hefur sýnt sig hér heima, vöxturinn er ótrúlegur.“

Alexander mun sjá um allan daglegan rekstur skólans en Héðinn mun deila tíma sínum milli Íslands og Spánar og kenna á báðum stöðum. „Ég er orðinn svo gamall og börnin mín öll uppkomin. Eiginkona mín kemur með mér út þannig að ég get þvælst á milli eftir því hvar vinnan er hverju sinni.“

Í tilefni stofnunar skólans býður Dive Benidorm fólki á byrjendanámskeið í köfun ásamt gistingu í viku fyrir aðeins 450 evrur. Tilboðið gildir út nóvember. Hægt er að fá nánari upplýsingar um skólann í síma 6993000.

-sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.