Vinskapur einhleypra 29. september 2012 17:00 Klúbbarnir Sóló og París eru til þess fallnir að veita einhleypum félagsskap til að gera ýmislegt sem pör gera yfirleitt saman. Nordicphotos/afp
Einhleypingar á öllum aldri eiga það til að finnast þeir vera þriðja hjól í vagni innan um vini sína sem eru jafnvel allir í samböndum. Félögin Sóló og París eru skemmtilegur vettvangur fyrir einhleypa til að koma saman með öðrum í sömu stöðu og mynda vináttubönd. „Fólk upplifir oft höfnun úr hjónasamfélaginu þegar það verður eitt eftir til dæmis makamissi eða skilnað. Við viljum gefa því tækifæri til að eignast vini til að gera hluti með, hluti sem fólk í samböndum gerir venjulega saman,“ segir Guðrún Bjarnadóttir, meðlimur í París, félagi einhleypra. París var stofnað árið 2003 og eru meðlimir um sjötíu talsins. Félagið er fyrir fólk frá miðjum aldri og upp úr og er markmið þess að veita félagsskap og stuðla að vináttu. „Þetta er ekki stefnumótaþjónusta, þótt það komi að sjálfsögðu fyrir að fólk kynnist á þann hátt þarna eins og hvar annars staðar,“ segir Guðrún. Sólóklúbburinn er svipað félag, en fyrir yngra fólk og markhópur þess er aldurinn frá þrítugu til fimmtugs. Klúbburinn var stofnaður árið 2007 og hafa á milli 700 og 800 meðlimir verið í félaginu frá stofnun segir Stefán H. Jóhannesson, meðlimur og einn stofnenda. „Þar sem það er skilyrði að fólk sé einhleypt til að vera í félaginu er það auðvitað þess eðlis að fólk kemur og fer,“ segir Stefán og bætir við að mörg pör hafi orðið til innan Sólóklúbbsins, þó hann sé ekki stefnumótaklúbbur frekar en Parísarklúbburinn. „Auðvitað gerist það. það er bara eðlilegt og skemmtilegt þegar fólk kynnist í svona venjulegu umhverfi en ekki ölvað á djamminu,“ segir hann. Bæði París og Sóló bjóða upp á fjölda skemmtilegra viðburða í viku hverri, auk þess sem félögin starfrækja lokaðar heimasíður þar sem fólk getur leitað eftir félaga til gera ýmislegt með, til að mynda að sækja ákveðnar leiksýningar sem það langar til að sjá. Kynjahlutföll eru körlum í óhag í báðum félögum en Stefán segir karlana þó vera hlutfallslega virkari. „Þó karlmenn skipi ekki nema um þrjátíu prósent hópsins eru hlutföllin örugglega nær 40/60 þegar horft er til viðbragðanna því þeir eru svo duglegir að taka þátt,“ segir hann.- trs
Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira