Húsnæðislaust höfuðsafn 29. september 2012 06:00 Verið er að pakka niður safnkosti, en því starfi skal vera lokið um áramót. Velgjörðarmenn ámálga að fá muni sína til baka vegna stöðu safnsins. fréttablaðið/valli
Unnið er að því að pakka niður safnkosti Náttúruminjasafns Íslands. Hætt hefur verið við sýningarhald í gömlu loftskeytastöðinni. Ekkert liggur fyrir um framtíðarhúsnæði safnsins en unnið er að safnastefnu. Náttúruminjasafn Íslands (NMÍ), sem er höfuðsafn á sviði náttúrufræða, er húsnæðislaust frá og með áramótum. Hætt hefur verið við sýningarhald í gömlu Loftskeytastöðinni við Brynjólfsgötu. Verið er að pakka niður safnkosti. Ekkert liggur fyrir um framtíðarhúsnæði safnsins. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður er settur safnstjóri NMÍ til eins árs. Hún segir að húsnæðið við Brynjólfsgötu hafi verið hugsað sem bráðabirgðahúsnæði sem henti ekki til varðveislu safnkosts og því sé verið að koma gripum fyrir í viðunandi geymslu. Rætt hafi verið við Náttúrufræðistofu Kópavogs um hýsingu. Húsnæðið á Brynjólfsgötu er í eigu Þjóðminjasafnsins og samkvæmt heimildum blaðsins stendur til að Leikminjasafn Íslands, sem er einkasafn, flytji þar inn. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um það, að sögn Margrétar. „Mitt hlutverk er að koma málefnum NMÍ í betri farveg, meðal annars að klára safnastefnu NMÍ sem hefur verið í vinnslu í mörg ár. Stefnt er að því að þeirri vinnu ljúki fyrir áramót og þar verður lagður nauðsynlegur grundvöllur til framtíðar. Svo er verið að gera formlegt samstarfssamkomulag við stofnanir á sviði náttúruvísinda, sem var löngu tímabært.“ Um húsnæðismálin segir Margrét að Perlan í Öskjuhlíð sé til skoðunar sem sýningarhús, en annað húsnæði hafi ekki verið skoðað formlega, þó fleiri hugmyndir hafi verið nefndar. „En það eru engar áætlanir um að leggja safnið niður; þvert á móti stendur hugur allra til að veglegt safn á sviði náttúruvísinda rísi,“ segir Margrét. Helgi Torfason, safnstjóri í rannsóknaleyfi, telur möguleika til safnastarfs í Loftskeytastöðinni ágæta, þó vissulega hafi verið um húsnæði til bráðabirgða að ræða. Þar hafi verið safn um langt skeið og Margrét hafi sjálf boðið Loftskeytastöðina undir safnið á sínum tíma. Sýningarrýmið sé jafnstórt og í Þjóðmenningarhúsinu, eða Safnahúsinu gamla þar sem sýning náttúruminja stóð uppi um áratuga skeið, og safnið hafi farið inn í Loftskeytastöðina til að koma í veg fyrir að það væri landlaust með öllu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa nýjustu vendingar haft það í för með sér að velunnarar safnsins, bæði innlendir sem erlendir, hafa ámálgað að fá safngripum sínum, sem þeir hafa afhent safninu, skilað til baka. Um óbætanlegt tjón væri að ræða fyrir safnið ef svo færi. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira