Auðvitað er kómík alls staðar 23. september 2012 21:00 Nína Dögg Filippusdóttir leikkona hefur nóg að gera. Hún leikur annað tveggja hlutverka í Á sama tíma að ári, semur handrit að sjónvarpsþáttaseríu, mun leika í Bastörðum og sinnir börnum, svo örfátt sé nefnt. En hana langar ekkert að meika það í Hollywood. Drævið er hér. Fréttablaðið/GVA
Nína Dögg Filippusdóttir hefur verið áberandi í leiklistinni undanfarin ár, í sýningum Vesturports sem hún og maður hennar, Gísli Örn Garðarsson, stofnuðu ásamt hópi fólks, í kvikmyndum og hjá Borgarleikhúsinu. Um næstu helgi stígur hún á svið í aðalhlutverki í Á sama tíma að ári. Friðrika Benónýsdóttir ræddi við hana um sýninguna, Vesturport, skrifin og draumana.Er Á sama tíma að ári ekki barn síns tíma, á það eitthvert erindi við okkur í dag? "Ég spurði nú sjálfa mig þessarar sömu spurningar þegar þetta kom upp. Ég man líka svo vel eftir Sigga og Tinnu í þessum hlutverkum og finnst eitthvað svo stutt síðan þau léku þetta, þótt það séu víst að verða fimmtán ár. Ég hafði sem sagt smá efasemdir en svo las ég verkið og sá að þessi saga á alltaf við. Maður fer alveg með þessum persónum í gegnum litróf lífsins og þroskast með þeim á þessum tuttugu og fimm árum sem verkið spannar. Það speglar líka svo vel sjálfstæðisbaráttu kvenna, í byrjun er hún algjörlega ómenntuð og alveg græn og bara ofboðslega ánægð með líf sitt, á þrjú börn og býr í yndislegu raðhúsi og fer í keilu þrisvar í viku. En fer svo að finna fyrir leiða, leitar sér menntunar og endar sem atvinnurekandi."Framhjáhald er nú ekki beint fallegt umfjöllunarefni, eða hvað? "Nei, auðvitað ekki og enginn sem er fylgjandi því, en málið er að manni fer að þykja svo vænt um þau að maður gleymir því næstum að þau eigi annað líf og heldur alveg með þeim í þessu framhjáhaldi."Þú hefur ekki verið þekkt sem gamanleikkona hingað til, hvernig gengur það? "Ég hef minna gert af því, já. Auðvitað er kómík alls staðar, en ég hef ekki gefið mig út fyrir að vera neitt fyndin, enda er ég það alls ekki nema í þröngum hópi náinna vina. Ég kann til dæmis ekki að segja brandara. En Á sama tíma að ári er ekki beint gamanleikrit, allavega alls ekki farsi. Rómantískur gamanleikur með alvarlegan undirtón, lýsir því eiginlega best. Fyndnin liggur í textanum og kringumstæðunum, en ekki í neinum ærslum á sviðinu." Skrifin fara aldrei langt frá manniStrax að lokinni frumsýningu Á sama tíma að ári fer Nína Dögg að æfa næsta verkefni sem er uppfærsla Vesturports á Bastörðum í samvinnu við Borgarleikhúsið.Er eitthvað fleira í pípunum? "Það er alltaf alls kyns í gangi, sko. Við erum að fara til New York með Faust núna um jólin og ég Ingvar og Gísli erum að fara til London í janúar og sýna Hamskiptin á staðnum þar sem við byrjuðum, í Lyric Hammersmith-leikhúsinu þar sem verið er að setja upp The best of Lyric með alls konar sýningum sem hafa verið hjá þeim í gegnum tíðina. Þar verðum við í sex vikur og svo kem ég heim og held vonandi áfram í Á sama tíma að ári og Bastörðum. Það er alltaf nóg að gera."Þú hefur verið einn af handritshöfundum Vesturports í gegnum tíðina. Heillar það þig að skrifa ein? "Nei, ég hef ekki það sem þarf til þess. Mér finnst ofsalega gaman að fá hugmyndir og þróa þær áfram en þegar kemur að því að skrifa þær út þarf ég að fá einhvern annan í lið með mér. Við Unnur Ösp erum til dæmis búnar að vera að vinna að hugmynd saman í fimm ár sem er okkur mjög kær. Við höfum unnið mikla rannsóknarvinnu, þróað karaktera og strúktúr og nú er komið að því að barnið fari að fæðast. Það er sjónvarpssería sem ber vinnutitilinn Fangar og fjallar um konur í fangelsi og er núna að fara á fullan skrið. Við erum komnar með frábæra handritshöfunda með okkur, þau Margréti Örnólfs og Jóhann Ævar, og framleiðslufyrirtækið Mistery, sem hefur unnið með okkur að mörgum verkefnum, er að undirbúa framleiðslu sem væntanlega fer í gang fljótlega. Þannig að skrifin fara aldrei neitt langt frá manni og það finnst mér ógeðslega skemmtilegt."En að leikstýra, hefur þig aldrei langað til þess? "Nei. Það hefur aldrei heillað mig. Ég gekk alveg í gegnum það að velta því fyrir mér hvort það væri vegna þess að ég liti ekki nógu stórt á mig eða fyndist ég ekki nógu góð, en það hefur ekkert með það að gera – ég hef bara ekki áhuga á því."Finnst þér þú kannski standa í skugganum af eiginmanninum? "Nei, það hefur mér aldrei fundist. Við höfum alltaf verið svo samstíga í þessu, stundum er voða mikið að gera hjá honum og stundum hjá mér og við lögum okkur bara að því. En við vorum orðin par áður en við byrjuðum í leiklistarskólanum þannig að líf okkar hefur bara snúist um leiklistina og svo erum við auðvitað hluti af þessum stóra hópi sem er Vesturport, þar sem við vinnum öll saman og komum okkar hugmyndum á framfæri, þannig að það hefur aldrei komið til að einhver væri meiri en annar." Þú ert eiginlega eina konan í toppsæti hjá Vesturporti, er ekkert erfitt að þurfa að kljást við alla þessa karla? "Við höfum nú yfirleitt verið þrjár. Ég, Nanna Kristín, sem er reyndar í Kanada núna að læra leikritaskrif, og Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastjórinn okkar, sem er sko alvöru kona, þannig að þetta hefur alls ekki verið neitt erfitt. Þeir gera bara allt sem við segjum þeim að gera. Vesturport væri ekki til ef við værum ekki þarna." Hugsa ekki um að meika þaðNú er Vesturport búið að starfa ansi lengi og hópurinn verið á miklum ferðalögum saman, eruð þið ekkert orðin leið hvert á öðru? "Nei, alls ekki. Það vinna allir í sínu út um allt og svo komum við bara öll saman í ákveðin verkefni og eigum hvort annað alltaf að. Vesturport átti fyrst og fremst að vera vettvangur til að þróa okkur sem listamenn, koma hugmyndum okkar á framfæri og fá stuðning hvert frá öðru til að láta drauma okkar rætast. Og það hefur verið þannig allan þennan tíma. Við gerðum einhvern tíma eitthvað manifestó, en við vorum fljót að henda því, þetta litla upphaflega manifestó er alveg nógu gott og hefur virkað vel fyrir okkur. Þetta er bara ótrúlega gott öryggisnet og ég er óskaplega þakklát fyrir þessa yndislegu vini mína og fjölskyldu, því þau eru auðvitað orðin eins og fjölskylda manns. Auðvitað hefur ýmislegt komið upp á en sem betur fer erum við svo flink að við höfum alltaf náð að leysa það og knúsast. Bara svona eins og gerist í eðlilegum fjölskyldum."Ykkur Gísla hefur aldrei dottið í hug að setjast að erlendis og reyna að skapa karríer þar? "Nei, ekki setjast að. Við höfum auðvitað verið langdvölum erlendis, vorum til dæmis ár í London og fjóra mánuði í Noregi, en ég get ekki hugsað mér að flytja alfarið frá Íslandi. Það er best að vera hér. Hér er kjarninn okkar og beisið og okkur finnst best að vinna sýningarnar okkar hér og fara síðan með þær út. En það er ýmislegt í bígerð og kannski munum við fara út í eitt ár eða svo, en ekki til að búa í lengri tíma. Það myndi ég aldrei vilja."Hvað með kvikmyndaframann, heillar ekkert að reyna að ná fóstfestu í þeim bransa erlendis? "Neeeei, held ekki. Auðvitað myndi ég ekki segja nei ef mér væri boðið hlutverk í Hollywood-mynd, en að flytja þangað til að mæta í endalausar prufur og kynna sjálfan sig heillar mig ekki. Ég geri mér líka grein fyrir því að ég er orðin 38 ára og tækifærin bíða ekkert í röðum. Ég var með Gísla í Marokkó við tökurnar á Prince of Persia og það var alveg dásamlegur tími. Gaman að kynnast öllu þessu fólki og fá að nasa aðeins af þessum heimi, en ég hugsa aldrei um það að meika það sem kvikmyndastjarna, það er svo óraunverulegt. Fyrir utan það að drævið mitt er hér."Kom einhvern tíma til greina að verða eitthvað annað en leikkona? "Eiginlega ekki. Amma mín, Sólveig Guðlaugsdóttir, er stórkostleg kona og hún sagði við mig þegar ég var mjög lítil að ég skyldi finna mér starf sem ég hefði ánægju af, því maður eyddi svo miklum tíma í vinnunni. Það síaðist rækilega inn. Ég hef alltaf verið litli trúðurinn sem vildi bara hafa gaman, hoppa út um allt og vera hress. Þannig að leiklistin hentaði mér í alla staði. Það eru líka ótrúleg forréttindi að fá að vinna við það sem maður elskar, það gefur manni endalausan kraft."
Mest lesið Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Bíó og sjónvarp Zendaya sást í miðbænum Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Fleiri fréttir Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Sjá meira