Frábært hvað börn eru klár 1. september 2012 11:00 Eva maría með börnin. Egill Scheving tólf ára, Matthildur Óskarsdóttir, 13 ára í október, Eva María með Sigríði Scheving tveggja ára, Kolfinna Scheving fimm ára, Sigrún Óskarsdóttir sjö ára í október, Hrafnkatla Scheving átta ára í október og Júlía Óskarsdóttir níu ára. Fréttablaðið/Anton
Hugðarefnin hafa dálítið verið lögð á hilluna frá því ég eignaðist síðasta barnið fyrir rúmum tveimur árum. Ég hef ekki viljað setja dóttur mína í pössun fyrr en hún kæmist á leikskóla og það gerðist fyrir rúmri viku. Mér hefur tekist að hafa öll mín börn heima þar til þau fara á leikskóla, reyndar með alls konar aðstoð. En mér hugnast best að sjá um þetta sjálf og þá eru ókostir sem fylgja því, eins og að þurfa að leggja sitt til hliðar. Auðvitað sækir stundum að mér leiði, en það þýðir samt ekki að ég sé að missa geðheilsuna og verði að komast út. Það sem ég sakna helst er að tala meira við fullorðna. Til dæmis að byrja og enda setningar!" Þetta segir Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarkona sem hefur verið í fullu starfi sem móðir og húsmóðir síðustu ár. Hún og maður hennar, Sigurpáll Scheving hjartalæknir, eiga sjö börn samtals og fimm þeirra eru í skólakerfinu á Seltjarnarnesi, þar sem Eva María og Sigurpáll búa. Hin tvö börnin koma um helgar. „Það er frábært að geta tekið á móti börnunum þegar þau koma heim og gefið þeim drekkutíma eins og maður fékk í gamla daga," segir Eva María brosandi og bætir við. „Ég er ekki að segja að það gangi allt hljóðalaust og allir setjist niður og fari svo bara að læra. Það er auðvitað ringulreið á köflum. Yngsta dóttirin, Sigríður, er eina barnið mitt sem á sex eldri systkini og hefur frá fyrsta degi verið ofurörvuð af þeim, hún er mjög fullorðinsleg eftir aldri, spjallar og rífst og stendur mjög vel í lappirnar í þessari baráttu." Skyldi sú stutta vera dekurbarn? Eva María dregur við sig svarið. „Já, að því leyti að ég er ekki stíf við hana á sumum sviðum, eins og til dæmis að sofa í sínu rúmi. Tek bara þátt í orrustum ef ég verð að sigra. Stundum er heldur ekki þess virði að vesenast í því, en ég mundi ekki hika við að taka þetta dekur af dagskrá ef svefnleysi væri farið að há mér." Yngri telpurnar deila herbergi tvær og tvær en tvö elstu börnin hafa sérherbergi. „Það er ekkert að því að börn séu saman í herbergi," segir Eva María. „Auðvitað er leiðinlegt ef þau hafa mjög lítið pláss en heimurinn allur er leikvöllur. Það er garðurinn, hverfið, fjaran og holtið. Þess vegna segjum við þeim miskunnarlaust að fara út að leika. Það tekur svolítinn tíma að venja börn á það og þau þurfa að festast við eitthvað áhugavert úti til að endast þar. En þegar það er búið eru þau bara úti að leika lon og don og gleyma sér og það er frábært. Þannig á æskan að vera. Börn verða að upplifa eitthvað og prófa að fara aðeins frá heimilinu og svo aðeins lengra næst. Við fluttum hingað út af staðsetningunni. Krakkarnir geta gengið í allt sem þau hafa áhuga á. Hér er ballett, fimleikar, fótbolti, handbolti, sund og tónlistarskóli. Meira að segja myndlistarskólinn er í seilingarfjarlægð, úti í JL húsi." Hann hringdi í mig og svo hittumst viðHvernig skyldi hún svo hafa kynnst hjartalækninum Sigurpáli? „Í stuttri útgáfu er sagan þannig að hann fékk símanúmerið mitt hjá sameiginlegum kunningjum, hringdi í mig og svo hittumst við. Síðan höfum við verið saman. Rosalega einfalt. Við höfðum aldrei sést áður en vorum bæði skilin og á þannig stað í lífinu að við vorum rétt að átta okkur á því að þegar maður væri skilinn mætti maður hitta annað fólk. Einn góðan veðurdag hittumst við svo með þessum rosalegu afleiðingum. Það var óvænt og skemmtilegt," segir Eva María og hlær. Bætir svo við: „Auðvitað gengur á ýmsu en við erum dagfarsglöð og höfum nóg að gera þannig að það er lítill tími til að ala á drama. Við erum ólík en höfum tekið orku og tíma í að samstilla okkur, ekki síst í uppeldinu. Þar verður að vera jafnræði og eitt yfir alla að ganga. Stjúpforeldrahlutverkið er lært hlutverk, það er ekki eitthvað sem fólk hefur í sér, en auðvitað eru margir þættir þess þeir sömu og í móður- og föðurhlutverkunum. Að sýna kærleika í verki virkar en maður veit ekki alltaf hvað má – og á – sem stjúpforeldri. Það eru ýmis atriði sem þarf að ræða við hitt foreldrið og samræma. Þetta er svolítið tímafrekt til að byrja með en svo venst það og gengur betur með hverjum deginum sem líður. Það er líka svo frábært hvað börn eru klár. Það er ekkert mál fyrir þau að vera í einu húshaldi sem er með vissar reglur og venjur og í öðru húshaldi sem er einhvern veginn öðruvísi. Þau svissa á milli eins og ekkert sé. Það sér maður mjög glöggt. Við vitum kannski ekkert alveg hvernig hin húshöldin eru en það væri fáránlegt að ætla að þar væru nákvæmlega sömu áherslur og sömu viðhorf við öllum mögulegum hlutum. Við erum svo heppin að börnin okkar eru rosa góðir vinir og vilja frekar vera saman en sundruð, bara einhvers staðar þar sem þau geta leikið sér út í eitt, alveg sama hvar, þess vegna heima hjá mömmu barnanna hans Sigurpáls eða hjá pabba krakkanna minna. Það eru svo margir sem standa að þessum börnum og bera hag þeirra fyrir brjósti. Óskar, faðir eldri barnanna minna, fer með þau í gönguferðir um landið og lætur þau bera allt á bakinu. Það er nefnilega allt í lagi að leggja eitthvað á börn. Ég hef hitt krakka sem hafa farið í Disneyland og fjallgöngu á sama sumri og það var fjallgangan sem stóð upp úr. Að labba frá Hesteyri yfir í Aðalvík – það toppaði Disneyland." Stundum fara þau Eva María og Sigurpáll líka í ferðalög með alla krakkana og ekki bara í þau auðveldustu. „Þetta eru ótrúlegar ævintýraferðir þegar við ferðumst öll saman og upplifum eitthvað nýtt," segir Eva María. „Í fyrra fórum við í Jökulfirðina á Vestfjörðum og í sumar í Þórsmörk og á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Allt gengur þetta einhvern veginn upp. Sigurpáll er Vestmannaeyingur þannig að við bjuggum í heimahúsi en það er guðlast að vera í Eyjum og taka ekki þátt í hátíðahöldunum og þar læra börnin af hinum fullorðnu að skemmta sér fallega." Ætlar að kenna krökkum að kveðaSkyldi Eva María svo sjálf eiga einhverjar frístundir út af fyrir sig? „Já, já. Ég er í kór, var að byrja í djassballett og hef verið send á golfnámskeið. Svo er ég alltaf að taka einhver fög í miðaldafræði í Háskóla Íslands, en ég er líka auðmjúk og sveigjanleg og tilbúin til að lúta í gras ef það gengur ekki. Ég er með BA í bókmenntafræði og þegar ég loksins náði að skila lokaritgerðinni 2007 þá var áhugi minn orðinn bullandi á þessum fræðum. Það var út frá þeim sem ég fór að skoða handrit með sagnadönsum og prófa þá á krökkunum. Þeim fannst þeir skemmtilegir enda er þetta myndrænt, ævintýralegt og fyndið efni. Því var mjög freistandi að gefa þá út þannig að þeir væru aðgengilegir og það tókst í fyrra þegar Dans vil ég heyra kom í bókabúðir." Það sem fram undan er hjá Evu Maríu í haust er að hitta hópa leik- og grunnskólabarna í Gerðubergi. Hún og Nanna Hlíf Ingvadóttir tónmenntakennari ætla að leiðbeina þeim í að syngja gömul kvæði með ýmsum lagboðum. „Krakkar eru mjög fljótir að tileinka sér svona efni, þeir geta lært langa bálka utan að á ótrúlega skömmum tíma. Í mörgum leikskólum og barnaskólum er þessum þjóðlega arfi haldið að börnum, en það má alltaf bæta í og nú býðst ákveðnum aldri að koma í eins konar smiðju og vinna með sagnadansa. Markmiðið er að þegar þau gangi út þá geti þau kveðið. Ég er sannfærð um að það takist."
Mest lesið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Lífið Heklaði á sig forsýningarkjólinn Tíska og hönnun Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Lífið Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Lífið „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Lífið Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma Lífið Skortur á viðtengingarhætti hjá Laufeyju sé hluti af stærri þróun Menning Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Gagnrýni Tjáir sig um erfiðar tökur: Engir meðleikarar og enginn leikstjóri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Robert Redford er látinn Norska konungsfjölskyldan krefst breytinga á heimildarmynd Netflix Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Fögur hæð í frönskum stíl „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu „Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“ Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa „Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“ Ein sú fegursta komin á fast Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina Lifði með fjögurra prósenta sjón án greiningar Adolescence, The Studio og Colbert komu, sáu og sigruðu Kettir með engar rófur til sýnis Bein útsending: Haustbingó Blökastsins Safnaði fyrir draumaferðinni á þremur mánuðum Krakkatían: Vestfirðir, sundkappi og söngleikur Skyrið okkar ekki lengur ostur heldur jógúrt Snýr aftur sem ritstjóri eftir tvo áratugi Fréttatía vikunnar: Þingsetning, landsleikur og klamydía Nýr forseti ÍSÍ kallar eftir sameiginlegu átaki í lýðheilsu Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Sjá meira