New Regency endurgerir Borgríki í Hollywood 16. mars 2012 13:00 Þessi mynd er úr kynningartökunum fyrir framhaldsmyndina en tökur á stiklu fyrir fjárfesta hafa staðið yfir í vikunni. „
Ég á von á að við klárum samninga á næstu dögum," segir leikstjórinn Ólafur Jóhannesson um samning við kvikmyndarisann New Regency um endurgerð á íslensku spennumyndinni Borgríki. Aðdragandinn hefur verið nokkuð langur en það var strax í haust, fyrir frumsýningu Borgríkis á Íslandi, sem Ólafur gerið samning við umboðsskrifstofuna Principal Entertainment. Þar komst hann í samband við Hollywood framleiðendurna James Mangold og Cathy Conrad sem sáu til þess að New Regency fékk veður af myndinni en Mangold og Conrad eru með myndir á borð við Walk the Line, Girl Interrupted og Scream 1, 2, 3 og 4 á ferilskránni. „Kathy Conrad og James Manigold eru mjög stór nöfn í bransanum. Nú fer ákveðin undirbúningsvinna í gang þarna úti undir þeirra stjórn. Það er verið að finna góða handritshöfunda sem geta aðlagað handritið að bandarískum veruleika en ekki er komið neitt á hreint með leikstjóra eða hvaða borg verður sögusviðið," segir Ólafur en New Regency er eitt af stærstu framleiðslufyrirtækjum í Bandaríkjunum. „Þetta er mjög stórt og við Kristín Andrea, sem framleiddi Borgríki með mér, erum komin með sterkan lögfræðing til að sjá um okkur þarna úti því þetta er mikill frumskógur." Bíómyndin Borgríki sló í gegn hérlendis og er Ólafur þegar byrjaður að huga að framhaldsmynd. Ólafur skrifar sjálfur handritið í samvinnu við Hrafnkel Stefánsson og er fyrsti hluti þess tilbúin. „Við erum byrjuð að undirbúa Borgríki 2 og í vikunni höfum við verið að búa til stiklu fyrir fjárfesta," segir Ólafur sem getur ekki gefið mikið uppi með söguþráðinn í framhaldsmyndinni en hann á von á því að aðalleikaranir verði þeir sömu, þau Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E Sigurðsson, Sigurður Sigurjónsson og Zlatko Krickic. Þrátt fyrir að undirbúningur sé hafinn á Ólafur von á að nokkur bið verði í myndina sjálfa. „Ég mundi telja að það væru allavega eitt til tvö ár þangað til við hefjum tökur." alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Björk og Yara nýtt par Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Sjá meira