Eins og falleg haglabyssa 16. febrúar 2012 17:15 Hljómsveitin Sleigh Bells gefur í næstu viku út plötuna Reign of Terror.
Önnur plata bandaríska dúósins Sleigh Bells kemur út eftir helgi. Einstakur hljómurinn hefur vakið athygli víða um heim. Sleigh Bells er samstarfsverkefni Dereks E. Millers og söngkonunnar Alexis Krauss. Þau hittust í New York árið 2008 þegar Miller var að þjóna Krauss og móður hennar til borðs á brasilískum veitingastað. Þegar Miller minntist á að hann væri að leita að söngkonu í nýja hljómsveit stakk móðir Krauss umsvifalaust upp á dóttur sinni. Hinn einstaki hljómur Sleigh Bells þar sem blandað er saman hávaðarokki og poppi á rætur að rekja til ólíks tónlistarbakgrunns þeirra Millers og Krauss. Miller var áður gítarleikari í harðkjarnasveitinni Poison the Well og Krauss var meðlimur unglingapoppsveitarinnar RubyBlue. Samvinna þeirra er því óvenjuleg en gengur einhverra hluta vegna alveg fullkomlega upp. Sleigh Bells vakti hægt og bítandi athygli í tónlistarbransanum og vorið 2010 skrifaði hljómsveitin undir útgáfusamning við N.E.E.T. sem er í eigu tónlistarkonunnar M.I.A. Fyrsta platan, Treats, kom út skömmu síðar og vakti mikla athygli. Ekki skemmdi fyrir kraftmikil frammistaða Millers og Krauss á tónleikum. Öflugur trommutakturinn, bjagaður gítarleikurinn og hljóðgervlapoppið féll vel í kramið hjá gagnrýnendum og almenningi. Falleg rödd Krauss sveif svo yfir öllu saman þannig að úr varð grípandi tónlistarbræðingur. Önnur plata Sleigh Bells, Reign of Terror, kemur út eftir helgi. Í þetta sinn störfuðu Miller og Krauss að henni í sameiningu en Miller sá algjörlega um lagasmíðarnar á Treats, enda hafði hann ekki hitt Krauss þegar þau lög voru samin. Gítarleikurinn er meira áberandi en áður og platan er þung og yfirgripsmikil, samkvæmt fréttatilkynningu sveitarinnar. Þar segir að hljómurinn sé eins og í „fallegri haglabyssu sem hleypt er af í hausinn á manni". Sleigh Bells fylgir Reign of Terror eftir með tónleikaferð sem hófst á þriðjudaginn í Flórída en lýkur í Washington 27. mars. Tónleikarnir verða fimmtán í heildina, þar á meðal fimm á Bretlandseyjum. Einnig má búast við að sveitin trylli lýðinn á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í sumar. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira