Tobba flýr Kópavog 15. febrúar 2012 22:00 Þorbjörg Marínósdóttir og Karl Sigurðsson flytja í nýja íbúð á Ránargötu í byrjun sumars. Fréttablaðið/anton „
Í ljósi aðstæðna kveð ég ekki með miklu trega," segir Þorbjörg Marínósdóttir, rithöfundur og kynningarfulltrúi Skjásins, sem hefur fest kaup á sinni fyrstu íbúð í 101 Reykjavík og kveður þar með Kópavog. Þorbjörg, eða Tobba eins og hún er kölluð, hefur ávallt verið gallharður Kópavogsbúi enda búið þar alla sína ævi. Nú hefur hún fest kaup á íbúð á Ránargötu ásamt kærasta sínum, borgarfulltrúanum Karli Sigurðssyni. „Þetta eru heilmikil tímamót fyrir mig, fyrsta íbúðin og kveðja Kópavog. Sama dag og við skrifuðum undir kaupsamning komst Gunnar Birgisson aftur til valda í Kópavogi svo ég verð eiginlega bara að prísa mig sæla yfir að vera að fara," segir Tobba en þau fá íbúðina afhenta í byrjun júní. Tobba segist ætla að aðhyllast umhverfisvænum lífstíl í kjölfar flutninga niður í miðbæ enda eigi hún svo vistvænan mann. „Ég þarf að fara að fjárfesta í flatbotna skóm því við Kalli ætlum að fækka bílnum niður einn og reyna að hjóla og skokka í vinnuna þegar við getum. Það verður líka meiri háttar að geta loksins fengið sér hvítvínsglas með vinkonunum án þess að spá í leigubíl heim." Tobba hefur þegar sagt íbúðinni sinni í Kópavogi upp og flytur til Kalla á Ásvallagötuna þangað til þau fá nýju íbúðina afhenta. „Hann býr í ekta piparsveinaíbúð og ég í miklum vandræðum að koma fötunum mínum fyrir þar. Þess vegna verð ég að selja í Kolaportinu 25. febrúar og losa um. Ekki veitir heldur af fjármagningu þegar maður en búinn að steypa sér í skuldir."- áp
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira