Yrsa gerir það gott í Noregi 13. febrúar 2012 12:15 vinsæl í noregi Yrsa Sigurðardóttir hefur fengið góð viðbrögð í Noregi við bók sinni Ég man þig. „
Þetta er glæsilegt. Hún hefur aldrei farið svona hátt," segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti Veröld. Tryllirinn Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttir er í tíunda sæti yfir vinsælustu skáldsögur Noregs en listi þess efnis var birtur í öllum helstu dagblöðum Noregs í gær. Ég man þig er fyrsta bók Yrsu sem kemur út hjá norska forlaginu Kagge en annað norskt forlag gaf út fyrstu þrjár bækur hennar þar í landi. Kagge hefur þegar sett aðra prentun af bókinni í gang. Vinsældir Ég man þig í Noregi eru engin tilviljun því bókin hefur fengið góða dóma þar í landi og sagði gagnrýnandi Verdens Gang hana „óbærilega spennandi". Yrsa var einmitt stödd í Noregi á dögunum við kynningu á Ég man þig og var meðal annars í stóru viðtali hjá Verdens Gang. Hún fer jafnframt á stóra glæpasagnahátíð þar í landi um næstu mánaðamót. „Norðmenn eru greinilega að kveikja á henni," segir Pétur Már. Ég man þig hefur áður komið út í Þýskalandi og þar hefur hún selst í hátt í hundrað þúsund eintökum auk þess sem hún sat vikum saman á þýska bóksölulistanum. Bókin kemur hugsanlega út í Bretlandi síðar á þessu ári og í Bandaríkjunum á því næsta. Einnig er bókin væntanleg í verslanir í Póllandi, Portúgal og Frakklandi. Ég man þig kom út hér á landi fyrir jólin 2010 og hefur selst í yfir tuttugu þúsund eintökum.- fb
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira