Arabískur plötusnúður á Selfossi 9. febrúar 2012 09:00 DJ Slim spilar á þrennum tónleikum hérlendis á næstunni. „
Ég elska Ísland. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem hingað og þetta er mjög fallegt land,“ segir plötusnúðurinn DJ Slim sem kom til Akureyrar í gær eftir sólarhringsferðalag frá Katar. „Ég gæti vel hugsað mér að taka upp næsta tónlistarmyndband mitt hérna.“ Slim hóf feril sinn sem rappari fyrir um tuttugu árum og spilaði m.a. á tónleikum með Coolio í París. Hann var á meðal fyrstu arabísku rapparanna til að koma fram á sjónarsviðið en sagði á endanum skilið við rappið. Nokkrum árum síðar ákvað hann að gerast plötusnúður og hefur spilað house-tónlist af miklum krafti undanfarin þrjú ár. „Ég nota nýja tækni þar sem ég endurhljóðblanda og sem nýja tónlist á meðan ég er að spila,“ segir Slim sem notast við Midi-græjur í fagi sínu. Slim, sem er fæddur í Túnis, starfar við þrívíddargerð á sjónvarpsstöð í Katar og hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að hann ætli að taka upp efni fyrir stöðina um næturlífið á Íslandi. Hann vildi ekkert tala um dagvinnuna sína við blaðamann heldur miklu frekar um plötusnúðaferilinn. Hann spilar þrívegis hér á landi, eða á Akureyri í kvöld og annað kvöld og á 800 Bar á Selfossi á laugardagskvöld. Með honum á Akureyri spilar plötusnúðurinn Birgir Rafn Ólason, sem flutti Slim til landsins. „Við erum búnir að vinna tónlist saman í gegnum netið. Ég hélt að þessi maður myndi aldrei samþykkja að koma til Íslands nema fyrir stórar fúlgur fjár en honum fannst það ekkert mál,“ segir Birgir og bætir við: „Hann er að gera hluti sem enginn annar plötusnúður er að gera.“ - fb
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira