Sviðið stækkað fyrir Eurovision 7. febrúar 2012 09:45 Á annað hundrað manns koma nálægt úrslitum Eurovision í Eldborgarsalnum á laugardaginn. fréttablaði/valli
Á annað hundrað manns koma nálægt úrslitum Eurovision á einn eða annan hátt í Eldborgarsal Hörpunnar næsta laugardag. Um fjörutíu tæknimenn frá Sjónvarpinu verða í salnum, keppendurnir og fólkið í kringum þá verða um áttatíu talsins, auk þess sem starfsfólk Hörpunnar og fleiri starfsmenn Sjónvarpsins, þar á meðal kynnar, verða í salnum. Samkvæmt Elísabetu Lindu Þórðardóttur, sem kemur að framkvæmd keppninnar, verða áhorfendurnir um eitt þúsund talsins, sem er það mesta sem verið hefur í úrslitum Eurovision hérlendis. Miðar á keppnina seldust upp á fimm mínútum í þarsíðustu viku. „Það fóru hátt í eitt þúsund miðar í sölu og þeir hurfu einn, tveir og þrír,“ segir Elísabet Linda. Einhverjir miðakaupendur kvörtuðu yfir því hversu mörg sæti virtust vera frátekin en að sögn Elísabetar Lindu voru þau ekki svo mörg. Helst hafi verið tekið frá fyrir keppendurna. Eldborgarsalurinn tekur um 1.450 manns í sæti en hann nýtist ekki allur á laugardaginn. Sviðið verður stækkað og því var ekki hægt að selja miða í fremstu sætaraðirnar, auk þess sem annars staðar í salnum þurfti að taka frá pláss fyrir myndavélar Sjónvarpsins, sem verða alls fjórtán talsins. Sjö lög keppa til úrslita í Eurovision og fer sigurvegarinn til Aserbaídsjan í maí. Auk keppenda munu Páll Óskar og Hera Björk taka lagið í Eldborg. - fb
Mest lesið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið „Balí hefur einfaldlega stolið hjarta mínu“ Lífið Íslenski hönnuðurinn sem Dorrit dýrkar Tíska og hönnun Fyrsta Ungfrú Grænland í rúm þrjátíu ár Lífið Fékk sterkari bein án lyfja Lífið samstarf Söguleg rappveisla í Laugardalnum Tónlist Kynfræðingur, rektor og listakona styrktu tengslin Lífið Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lífið Með sálfræðigráðu á leið í skartgripahönnun í Róm Tíska og hönnun Þóttist hafa rekið bróður sinn sem mætti óvænt aftur Lífið Fleiri fréttir Fyrsta Ungfrú Grænland í rúm þrjátíu ár Kynfræðingur, rektor og listakona styrktu tengslin FM Belfast bætir við aukatónleikum Þóttist hafa rekið bróður sinn sem mætti óvænt aftur Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga „Balí hefur einfaldlega stolið hjarta mínu“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Hver er Thomas Skinner? Tryllingur, framhjáhald og myndarlegar máltíðir Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Enginn að rífast í partýi á Prikinu Hljóp undir fölsku nafni Úrslitaspurningin var um húðflúr aðalleikarans í Breaking Bad „Það jafnast enginn á við þig“ Hágrét þegar hún sagði mömmu að hún tæki ekki við búðinni Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lítill rappari á leiðinni Ljúffengar uppskriftir undir tuttugu mínútum Fátt skemmtilegra en að klappa Einari á afturendann á almannafæri Haustlestur: Gotneskur drungi, magnaður sannleikur og boltarnir hans Trump Í fullkomnu starfi sem listrænn skipulagspési Krakkatían: Lína Langsokkur, Vegbúi og Afríka Hamingjustund þjóðarinnar í beinni útsendingu Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Bakaríið í beinni útsendingu „Vökvagjöfin er ekki bara eitthvað sem ég trúi á“ Fréttatía vikunnar: Heimsmet, fúkyrði og brjóstahaldari Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Ágústa Eva slær sér upp með KR-ingi Fagurfræði og ævintýralegt gróðurhús í Fossvogi Innviðaráðherra á von á barni Sjá meira