Óskarsverðlaunahafi á Northern Wave-hátíðina 31. janúar 2012 08:00 Dögg Mósesdóttir skipuleggur Northern Wave-kvikmyndahátíðina sem fer fram í fimmta sinn fyrstu helgina í mars. Franska kvikmyndatökukonan Isabelle Razavets er heiðursgestur hátíðarinnar.fréttablaðið/valli
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í fimmta sinn dagana 2. til 4. mars í Grundarfirði. Franska kvikmyndatökukonan Isabelle Razavets verður heiðursgestur hátíðarinnar en hún vann við myndina Murder on a Sunday Morning sem vann Óskarsverðlaunin árið 2001 sem besta heimildarmyndin. Yfir 160 stuttmyndir bárust hátíðinni í ár en 49 myndir voru valdar til sýningar. Keppt er í þremur flokkum; besta alþjóðlega stuttmyndin, besta íslenska stuttmyndin og loks besta íslenska tónlistarmyndbandið. Í ár skipa Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, Elísabet Ronaldsdóttir klippari og franska kvikmyndatökukonan Isabelle Razavets dómnefndina. Razavets vinnur einna mest við gerð heimildarmynda og var tökumaður myndarinnar Murder on a Sunday Morning sem vann Óskarsverðlaunin árið 2001. Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri Northern Wave, segir þátttöku Razavets vera mikið gleðiefni. „Isabelle er vinkona Sólveigar Anspach leikstjóra og þannig komst ég í samband við hana. Það eru frekar fáar konur sem vinna við kvikmyndatöku. Það má meðal annars rekja til þess að tökuvélarnar eru oft mjög þungar og starfið þótti og þykir því ekki henta konum. Það verður því áhugavert að hlusta á fyrirlestur hennar og heyra hennar vinkil á starfinu,“ segir Dögg. Gistiplássin í Grundafirði eru að verða uppbókuð og má því ætla að bærinn verði pakkfullur af aðkomufólki umrædda helgi. Þetta er í fimmta sinn sem Dögg skipuleggur Northern Wave en hún á von á sínu fyrsta barni aðeins þremur vikum eftir að hátíðin fer fram. „Ég hef sjaldan verið jafn skipulögð og nú og lærði í leiðinni að leyfa fólki að hjálpa mér meira. Þetta hefur því verið ágæt lexía og styttir líka biðina eftir barninu töluvert.“ - sm
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira